Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar auglýsir verkefnastyrki Vaxtarsamnings Eyjafjarðar

Óskað er eftir umsóknum um verkefnastyrki frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Allar atvinnugreinar hafa jafna möguleika á þátttökustyrkjum, uppfylli umsóknir skilyrði og helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við mat umsókna. Skilyrði er að um sé að ræða samstarf tveggja eða fleiri aðila og skal minnst helmingur þátttakenda vera fyrirtæki. Lögð verður áhersla á verkefni sem efla tengsl háskóla og atvinnulífs, sem og verkefni sem miða að markaðssetningu og útrás. Við val á verkefnum verður við það miðað að þau efli nýsköpun á Eyjafjarðarsvæðinu og stuðli að vexti svæðisins.

Verkefni sem hljóta munu samþykki hjá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar fá allt að 50% heildarkostnaðar við þau, geng mótframlagi annarra þátttakenda.

Leiðbeiningar með umsóknum

Umsóknareyðublað

Nánari upplýsingar veitir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, í síma 460-5700 eða á hjalti@afe.is.

Umsóknir skulu berast til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Skipagötu 9, 600 Akureyri eða á hjalti@afe.is