Ársþing Ungmenna- og íþróttasamands Fjallabyggðar

Ungmenna- og íþróttasamand Fjallabyggðar heldur ársþing sitt þriðjudaginn 15. júní í Tjarnarborg í Ólafsfirði og hefst það kl. 17:00 (ath. breytta dagsetningu) Dagskráin er sem hér segir: 1.   Formaður UÍF setur þingið.
2.   Kosning þingforseta og þingritara.
3.   Kosning 3ja manna kjörbréfanefndar.
4.   Álit kjörbréfanefndar.
5.   Lögð fram árskýrsla stjórnar svo og skoðaðir reikningar seinasta árs.
6.   Umræður um ársskýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
7.   Ávörp gesta.
8.   Kosning þingnefnda: kjörnefnd (3), allsherjar- og laganefnd (5) og fjárhagsnefnd (3)
9.   Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
10. Tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar lagðar fram og vísað til nefnda.
11.  Lagðar fram og teknar til umræðu tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum.

ÞINGHLÉ

12.  Álit nefnda, umræður og atkvæðagreiðsla.
13.  Kosningar. Álit kjörnefndar.
14.  Kosning stjórnar, sbr. 16. grein. Skal formaður kosinn sér, en hina í einu lagi. Stjórnin skiptir með sér verkum, í þau störf er um getur í 16. grein.
15.  Kosning skoðunarmanna, (tveir aðalmenn og tveir varamenn).
16.  Önnur mál.
17.  Þingslit.