07.05.2020
EKKI MISSA AF ICELAND TRAVEL TECH 8. MAÍ
Íslenski ferðaklasinn og Ferðamálastofa vilja vekja athygli á ráðstefnuni Iceland Travel Tech sem fram fer í annað sinn á morgun í stafrænum heimi. Iceland Travel Tech er sameiginlegt verkefni Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasans sem miðar að því að auka áherslu á tækni í íslenskri ferðaþjónustu.
Lesa meira
06.05.2020
Þau leiðu mistök urðu við vinnslu annálsins 2019 að einn fyrsti viðburður ársins var ekki nefndur sem sannarlega var ætlunin. Hér var um að ræða tónleika sem haldnir voru í Tjarnarborg en Jón Þorsteinsson, söngvari og söngkennari bauð til tónleikanna sem framlag hans til Markaðsstofu Ólafsfjarðar og til eflingar menningar í samfélaginu. Tónleikarnir voru haldnir á birtudegi 13. janúar en þessi dagur var lengi kallaður birtudagur á Ólafsfirði. Á tónleikunum komu fram þeir Maurice Rommers söngvari og Tamir Chasson sem lék undir á píanó. Flutt voru ítölsk lög, Schubert, skandínavísk lög, þar á meðal Sibelius og íslensk lög.
Lesa meira
05.05.2020
Fyrirhugað er að birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2020. Með því yrðu upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.
Lesa meira
04.05.2020
Fjallabyggð kallar til samráðsfundar um markaðsátak í Fjallabyggð fimmtudaginn 7. maí nk. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarborg og hefst kl. 17:00. Skráning verður á fundinn vegna fjöldatakmarkana.
Allir velkomnir.
Lesa meira
04.05.2020
Upp er runninn 4. maí, dagurinn sem við höfum öll verið að bíða eftir. Dagur sem, ef vel tekst til, markar lok tímabils farsóttar en um leið upphaf leiðarinnar að eðlilegra lífi okkar og upphaf glímunnar við efnahagslegar afleiðingar Covid-19. Frá og með deginum í dag er s.s. slakað á ýmsum þáttum samkomubanns og möguleikar okkar til þess lífs sem við teljum eðlilegt með því auknir. Auknar tilslakanir eru svo væntanlegar í lok mánaðar að því er þríeykið segir okkur.
Lesa meira