27.04.2018
Þann 1. maí verður lokað í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.
Lesa meira
26.04.2018
Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að taka þátt í hátíðardagskrá í tilefni að 100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar.
Gerum daginn eftirminnilegan.
Afmælisnefnd.
Lesa meira
25.04.2018
Laugardaginn 5. maí 2018 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna kosninga til sveitarstjórna sem hafa verið auglýstar þann 26. maí nk.
Kosningarétt við sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí n.k. eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag. Íslenskir ríkisborgarar sem stunda nám á Norðurlöndunum og sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt þangað vegna ákvæða samnings Norðurlandanna um almannaskráningu, glata ekki kosningarétti sínum vegna þess.
Lesa meira
19.04.2018
Bæjarfélagið Fjallabyggð óskar íbúum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.
Lesa meira
18.04.2018
Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar auglýsa breytta opnun á Sumardaginn fyrsta og Uppstigningardag.
Lesa meira
18.04.2018
Vorráðstefna MN og Air 66N
Þann 3. maí næstkomandi verður Vorráðstefna Markaðsstofu Norðurlands og Flugklasans Air 66n haldin í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Ráðstefnan hefst kl. 14 og lýkur kl. 17, en erindi framsögumanna munu meðal annars fjalla um flugferðir bresku ferðaskrifstofunnar Super Break og áhrif þeirra, tengiflug Air Iceland Connect á milli Keflavíkur og Akureyrar, innanlandsflug almennt og millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Dagskráin verður nánar auglýst síðar, sem og skráning á ráðstefnuna.
Lesa meira
17.04.2018
Dagana 2. - 22. maí nk. stendur yfir heilsu- og hvatningarverkefnið "Hjólað í vinnuna" en það er almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÍSÍ. sem hvetur vinnustaði til að taka þátt í þessari skemmtilegu vinnustaðakeppni um allt land.
Lesa meira
16.04.2018
159. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg Ólafsfirði 18. apríl 2018 kl. 17.00
Lesa meira
14.04.2018
Niðurstöður íbúakosningar í Fjallabyggð 14. apríl 2018 liggja fyrir. Kosið var um hvort fræðslustefnu Fjallabyggðar sem samþykkt var í bæjarstjórn 18.05.2017 haldi gildi sínu.
Lesa meira
13.04.2018
Athugasemd vegna fréttar sem birtist í Morgunblaðinu í gær 12. apríl og bar yfirskriftina Íbúar kjósa um akstur skólabarna.
Í fréttinni er staðreyndarvilla sem ástæða er til að leiðrétta.
Haft var eftir íbúa í fréttinni að foreldrar séu farnir að mæta of seint í vinnu þar sem skólarúta fari af stað kl. 8.30. Þessi fullyrðing er ekki rétt.
Lesa meira