Fréttir & tilkynningar

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2018. Opnað verður fyrir umsóknir og umsóknarfrestur er til og með kl. 29. nóvember nk.
Lesa meira

Neysluvatnið í Ólafsfirði er hæft til neyslu

Staðfest er að sýni sem Heilbrigðiseftirlitið tók af neysluvatni, þann 1. nóvember sl. í Ólafsfirði; í annars vegar vatnstanki Brimnesdals og hins vegar Hornbrekku, voru fullnægjandi sbr. reglugerð um neysluvatn nr. 536/2001. Óverulegt frávik var í sýni sem tekið var úr neysluvatni Múlalindar. Það er því ljóst að þær endurbætur sem unnið hefur verið við á sl. vikum hafa skilað tilætluðum árangri og ekki er lengur þörf á að sjóða neysluvatnið. Vinna stendur yfir við að koma fyrir útfjólublárri geislun á neysluvatnið, sem tryggir fullkomið öryggi og gæði.
Lesa meira

Kynningarfundur um Norrænu Strandmenningarhátíðina

Kynningarfundur með íbúum, þjónustuaðilum, verslunareigendum, fulltrúum atvinnulífs, félagasamtaka og annarra samtaka í Fjallabyggð vegna Norrænu strandmenningarhátíðarinnar.
Lesa meira

Opnunartími íþróttamiðstöðva helgina 4. og 5. nóvember

Íþróttamiðstöðin á Siglufirði verður lokuð helgina 4. – 5. nóvember vegna Íslandsmóts í blaki kvenna. Lengdur opnunartími verður þessa sömu helgi í Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði en hún verður opin sem hér segir: Laugardag frá kl. 10:00-16:00 Sunnudag frá kl. 10:00-16:00
Lesa meira

Ríkharður Hólm Sigurðsson kvaddur hinstu kveðju

Ríkharður Hólm Sigurðsson bæjarfulltrúi fæddist í Ólafsfirði 19. maí 1954. Hann varð bráðkvaddur 10. október sl. og verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju í dag kl. 14. Ríkharður var varamaður í bæjarstjórn Fjallabyggðar í upphafi kjörtímabils. Í október 2015 tók hann sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn og tók við stöðu forseta bæjarstjórnar. Í desember 2016 varð hann 1. varaforseti bæjarstjórnar og gegndi þeirri stöðu til dánardags.
Lesa meira

Kattahreinsun

Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir:
Lesa meira

Athugið að enn ber að sjóða allt neysluvatn í Ólafsfirði

Staðfest er að neysluvatn í Ólafsfirði en ennþá mengað. Sýni eru tekin reglulega og tilkynning um breytingar á gæðum neysluvatnsins verða tilkynntar um leið og óhætt er að neyta vatnsins. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum sem haldin var 24. október sl. að veita fjármagni til þess að setja upp geislatæki við vatnstankinn í Brimnesdal. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 5.000.000.- kr. Veitustofnun Fjallabyggðar hefur unnið við endurbætur á vatnsbólum og er byrjað að undirbúa uppsetningu á geislatækinu. Gera má ráð fyrir að geislatækið verði komið í notkun eftir 2-3 vikur.
Lesa meira

Fjallabyggð gerir kröfur um aukið öryggi farþega skólabíls

Í nýjum samningi við Hópferðabíla Akureyrar um skóla- og frístundaakstur fyrir tímabilið 2017-2020 er gert ráð fyrir auknu öryggi farþega skólabílsins.
Lesa meira

Sólberg ÓF með yfir 1000 tonn

Nýjasti frystitogari landsins Sólberg ÓF í eigu Ramma ehf. kom til Fjallabyggðar á vormánuðum og hóf veiðar strax í júní. Lestarrými í Sólbergi ÓF er gríðarlega stórt og getur skipið tekið vel yfir 1000 tonn af fiski í lestum skipsins. Fyrsta löndun Sólberg ÓF á þessu fiskveiðiári sló öll aflamet, þegar skipið landaði alls 1146,1 tonnum af fiski. Þar af voru 854 tonn af þorski, 170 tonn af Karfa og 85 tonn af Ufsa..
Lesa meira

Fjölmenni í Tjarnarborg á fallegum fyrsta vetrardegi

Margt var um manninn í gær, fyrsta vetrardag, í Menningarhúsinu Tjarnarborg þar sem þrjár lista- og handverkskonur úr Fjallabyggð stóðu fyrir sýningunni Sköpun og verk.
Lesa meira