Bæjarráð Fjallabyggðar

930. fundur 27. ágúst 2026 kl. 08:15 - 09:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Trúnaðarmál - innheimta 2026

Málsnúmer 2608057Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

2.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem felst í því að fært er á milli fjárfestingaliða. Niðurstaðan hefur engin áhrif í heild á fjárfestingar eða handbært fé.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagða tilfærslu milli liða að fjárhæð 10 mkr vegna tjaldsvæðisins í Ólafsfirði. Hann er til kominn vegna þess að kaupa þurfti allar þökur en til stóð að nýta gras þar sem fyrirhugað knatthús mun rísa. Einnig voru lagðar lagnir til að bregðast við vatnssöfnun í miklum rigningum og að hægt sé að dæla vatni í gegnum þær lagnir og einnig var bætt við rafmagnstenglum.
Fylgiskjöl:

3.Stækkun fráveitu - Primex

Málsnúmer 2410007Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kostnaðarskipting milli Fjallabyggðar og Primex vegna lagfæringar fráveitulagnar.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Framkvæmdum við lagfæringu á útrás við Primex vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Stefnt er að því að fara í framkvæmdina sem fyrst á næsta ári og löngu tímabært að þessu máli verði lokað.

4.Endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð 2026

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Í samræmi við samþykkt bæjarráðs á fundi þann 30.júlí s.l. liggur fyrir yfirlýsing frá lóðarhafa að Suðurgötu 87 vegna undanþágu er veitt var um hönnun húss og byggingarleyfi. Yfirlýsingin er gerð í samráði við lögmann Fjallabyggðar.

Íbúafundur var haldinn í gær þar sem endurskoðað hættumat var kynnt og liggja nú gögn frammi í ráðhúsinu á Siglufirði og í bókasafninu í Ólafsfirði að Bylgjubyggð þar sem mögulegt er að kynna sér hættumatið. Athugasemdafrestur er til 30.september n.k.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða yfirlýsingu.

5.Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar.

Málsnúmer 2201012Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs þann 12.febrúar 2026 var samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Landhelgisgæsluna um áframhaldandi þjónustu í Fjallabyggðarhöfn við varðskipið Freyju á forsendum samningsdraga er lágu þá fyrir. Fyrir liggur undirritaður samningur með fyrirvara um staðfestingu bæjarráðs og gildir hann frá 1.september 2026 til 30.apríl 2030.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Landhelgisgæsluna og fagnar því að Freyja eigi áfram heimahöfn á Siglufirði sem er mikilvægt vegna markmiðs aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum meðal annars með uppbyggingu björgunarmiðstöðvar.

Bæjarráð samþykkir jafnframt eftirfarandi áskorun:

"Í ljósi mikils álags á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar undanfarin misseri tekur bæjarráð Fjallabyggðar undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri og jákvæða umsögn Landhelgisgæslunnar um málið.

Í umsögn Landhelgisgæslunnar kemur fram að föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri yrði bylting í björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu. Með henni væri unnt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla verulega viðbragð á norður- og austurmiðum og hálendinu. Landhelgisgæslan hafði fulla viðbragðsgetu aðeins 61% ársins 2025 og telur óskynsamlegt að flytja eina núverandi þyrlu til Akureyrar án þess að fjölga þyrlum og áhöfnum.

Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja við næstu fjárlagagerð fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. Jafnframt verði hafið árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð að markmiði.

Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu."

6.Bakhópar Sambandsins í umhverfismálum

Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir skráningu í bakhópa um umhverfismál, þ.e. annars um úrgangsmál og hringrásarhagkerfið og hins vegar um loftlagsmál.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur tæknideild að skipa fulltrúa í bakhópana.

Fundi slitið - kl. 09:30.