Bæjarráð Fjallabyggðar

936. fundur 08. október 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
  • Þórir Hákonarson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson skrifstofustjóri

1.Farsældarráð SSNE

Málsnúmer 2603031Vakta málsnúmer

Á fjarfund bæjarráðs eru mætt þau Þorleifur Kr. Níelsson og Elva Gunnlaugsdóttir frá SSNE og Bjarkey O. Gunnarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, en bæjarráð óskaði eftir því á fundi sínum þann 17.september s.l. að fá verkefnastjóra til þess að kynna áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar þeim Þorleifi og Elvu kærlega fyrir yfirferðina á áætluninni. Bæjarráð samþykkir áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 og bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs falið að vinna málið áfram.

2.Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Þjónustusamningur við Fjallgarða um rekstur knattspyrnuvalla í Ólafsfirði rennur út á árinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fyrir liggur að þjónustusamningur við Fjallgarða ehf. rennur út um komandi áramót. Bæjarráð felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að ræða við Fjallgarða ehf. um stöðuna á svæðinu og nauðsynlegar framkvæmdir á næsta ári.

3.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við rekstraráætlun vegna ársins 2026 vegna þriggja gjaldaliða, þ.e. fyrirhugaðs snjómoksturs haustið 2026 þar sem mikill kostnaður var við snjómokstur s.l vor, holræsahreinsun á Ólafsfirði sem er mun umfangsmeiri er gert hafði verið ráð fyrir og loks fyrir viðhald á tækjabúnaði, snjótroðurum og skíðalyftum á skíðasvæðinu í Skarðsdal. Á móti auknum kostnaði er lögð til lækkun á kostnaði við opin svæði og viðhald húseigna sem ekki gafst ráðrúm til þess að framkvæma í sumar.
Hækkun gjaldaliða í tillögunni er samtals 56 milljónir króna og lækkun á móti 13 milljónir þannig að heildaráhrif eru um 43 milljónir króna í aukinn rekstrarkostnað sem breytir niðurstöðu rekstraráætlunar sem því nemur.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka.
Fylgiskjöl:

4.Trúnaðarmál - fasteignir 2026

Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.
Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.

5.Haf- og strandsvæðaskipulag

Málsnúmer 2502038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir staðfestingu á tilnefningu fulltrúa í svæðisráð haf - og strandsvæðaskipulags Eyjafjarðar. Fjallabyggð á ekki fulltrúa í svæðisráðinu en Þórir Hákonarson var tilnefndur í ráðið af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga s.l. vor.
Samþykkt
Meirihluti bæjarráðs leggur til við Samband íslenskra sveitarfélaga að tilnefna Helga Jóhannsson fyrir hönd Fjallabyggðar í svæðisráð vegna Haf- og strandsvæðaskipulags.
Fulltrúi D-lista lagði til að bæjarstjóri yrði tilnefndur í svæðisráðið.

6.Erindi frá Golfklúbbi Siglufjarðar

Málsnúmer 2610002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Golfklúbbi Siglufjarðar þar sem óskað er eftir viðræðum við Fjallabyggð um leiðir til að bæta og efla golfiðkun í sveitarfélaginu, m.a. með aðkomu GKS að umhirðu vallarins og leiðir til að bæta barna - og unglingastarf.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar GKS fyrir erindið og tekur undir með bréfritara að golfiðkun er holl og góð hreyfing og hentar öllum aldurshópum. Bæjarstjóra er falið að ræða við félagið um erindi bréfsins.

7.Styrkumsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2027

Málsnúmer 2609097Vakta málsnúmer

Búið að opna fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamanna fyrir árið 2027 á heimasíðu Ferðamálastofu þar sem áherslur eru minna sótt svæði og lenging ferðatímabils.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Fjallabyggð hyggst sækja um styrk fyrir næsta ár vegna fiskhjallaverkefnisins í Ólafsfirði og telur það falla mjög vel að áherslum sjóðsins. Bæjarstjóra falið að óska eftir ábendingum frá Ferðaklasa Fjallabyggðar sem gætu fallið þarna undir.

8.Skemmtiferðaskipin - Kortavelta í landi

Málsnúmer 2610004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur greining Teya á Íslandi yfir kortaveltu erlendra korta á árunum 2025 og 2026 í tengslum við komur skemmtiferðaskipa í nokkrar hafnir á Íslandi í samstarfi við Cruise Iceland. Fjallabyggðarhafnir voru ekki í því úrtaki sem notað er í greiningunni en niðurstöðurnar gefa vísbendingar um hversu mikla þýðingu komur skemmtiferðaskipa hafa á veltu í viðkomandi sveitarfélögum. Ítarlegar niðurstöður má finna á heimasíðu Teya https://www.teya.com/is/blog/skemmtiferdaskipin-i-teya-tolum
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar 165. fundur fræðslu- og frístundanefndar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.