Bæjarstjórn Fjallabyggðar

271. fundur 21. maí 2026 kl. 17:00 - 19:00 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 20.maí.

Samþykkt með 7 atkvæðum að taka fundargerð bæjarráðs frá 20.maí til afgreiðslu á fundinum.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 918. fundur - 7. maí 2026

Málsnúmer 2604012FVakta málsnúmer

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 2 og 7 borin upp til staðfestingar. Liðir 2 og 7 eru sér dagskrárliðir á fundinum.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 2 og 7 samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 919

Málsnúmer 2605005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók Guðjón M. Ólafsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.

3.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 10. fundur - 7.maí 2026

Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 2 sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku Arnar Þór Stefánsson og Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 2 samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
  • 3.2 2509055 Reglur um viðlegupláss Fjallabyggðarhafna
    Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 10. fundur - 7.maí 2026 Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum um viðlegupláss í Fjallabyggðarhöfnum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir reglur um viðlegupláss í Fjallabyggðarhöfnum með 7 atkvæðum.

4.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 161. fundur - 11. maí 2026

Málsnúmer 2605004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum og er borin upp í heild sinni
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 124

Málsnúmer 2605003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 333. fundur - 12. maí 2026

Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer

Liðir 5 og 6 í fundargerðinni bornir upp. Aðrir liðir í fundargerð eru sérstakir dagskrárliðir á fundinum.
Samþykkt
Til máls tóku Arnar Þór Stefánsson, Helgi Jóhannsson og Tómas Atli Einarsson.

Liðir 5 og 6 í fundargerðinni samþykktir með 7 atkvæðum. Aðrir liðir í fundargerð eru sérstakir dagskrárliðir á fundinum.

7.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2509016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingum á ákvæðum í 6.gr. á gjaldskrá vatnsveitu sem samþykkt var í bæjarráði þann 7.maí s.l. og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Tillagan gerir ráð fyrir því að bæjarstjórn verði heimilt að veita stórnotendum sérstakan afslátt frá gildandi gjaldskrá tímabundið og aldrei lengur en til þriggja ára.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á ákvæðum 6.gr á gjaldskrá vatnsveitu sem samþykkt var í bæjarráði þann 7.maí s.l. með 7 atkvæðum.

8.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026 upp á 57,5 milljónir króna sem samþykkt var í bæjarráði þann 7.maí s.l. og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárfestingaáætlun ársins 2026.

9.Leirutangi - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020 - 2032, vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Leirutanga. Tillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags - og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst.
Samþykkt
Bæjarstjórn staðfestir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar.

10.Leirutangi - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2107019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi Leirutanga, sem kynnt hefur verið í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags - og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
Bæjarstjórn staðfestir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leirutanga í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar.

11.Breyting á deiliskipulagi vegna Vetrarbrautar 8-10

Málsnúmer 2411088Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi Vetrarbrautar 8-10 var auglýst frá 30.3.-11.5. og bárust engar athugasemdir

Skipulags - og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
Arnar Þór Stefánsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

Bæjarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarbrautar 8-10 í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar.

12.Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2509034Vakta málsnúmer

Lögð er fram umsögn HMS skv. 1.mgr. 42. gr. skipulagslaga. Einnig lögð fram uppfærð gögn þar sem komið er til móts við framlagðar umsagnir stofnunarinnar.

Skipulags - og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlögð gögn og birt skuli auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt
Til máls tók Arnar Þór Stefánsson.

Bæjarstjórn staðfestir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar.
Í lok fundar kvaddi Guðjón M. Ólafsson sér hljóðs og bókaði eftirfarandi fyrir hönd bæjarstjórnar:

"Sigríður Guðrún Hauksdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er sá bæjarfulltrúi bæjarstjórnar Fjallabyggðar sem státar af lengstri setu í bæjarstjórn Fjallabyggðar. Á 16 ára löngum og farsælum ferli hefur hún gegnt fjölmörgum veigamiklum trúnaðarstörfum á vegum sveitarfélagsins og leitt mikilvægar nefndir og ráð.

Hún tók fyrst sæti í bæjarstjórn á kjörtímabilinu 2010 til 2014, þar sem hún gegndi bæði hlutverki bæjarfulltrúa og formanns fræðslu- og frístundanefndar. Á árunum 2014 til 2018 sat Sigríður áfram sem bæjarfulltrúi auk þess að vera aðalmaður í bæjarráði, en frá upphafi þess kjörtímabils og fram til loka árs 2016 var hún hluti af minnihluta bæjarstjórnar. Sá tími er eina tímabilið á 16 ára ferli Sigríðar Guðrúnar, þar sem hún sat í minnihluta bæjarstjórnar.

Á kjörtímabilinu 2018 til 2022 var Sigríður kjörin formaður fræðslu- og frístundanefndar á ný, auk þess sem hún tók við formennsku í öldungaráði. Hún var jafnframt varamaður í bæjarráði stærstan hluta þess tímabils en tók við embætti formanns bæjarráðs á árunum 2021 til 2022.

Frá upphafi kjörtímabilsins sem nú tekur senn enda, þ.e. frá árinu 2022, hefur Sigríður Guðrún gegnt embætti forseta bæjarstjórnar. Á árunum 2022 til 2025 sat hún einnig sem aðalmaður í bæjarráði og ásamt því að vera formaður stjórnar dvalarheimilisins Hornbrekku. Þá hefur hún setið sem aðalmaður í skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga á núverandi kjörtímabili og fór með formennsku í skólanefndarinnar árin 2022 til 2024.

Auk ofangreindra starfa hefur Sigríður Guðrún sinnt ýmsum öðrum mikilvægum trúnaðarstörfum. Hún hefur átt sæti í stjórn Síldarminjasafns Íslands og Þjóðlagasetursins á Siglufirði, verið fulltrúi sveitarfélagsins á landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga og átt sæti í fulltrúaráði Brunabótafélags Íslands.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar f.h. íbúa og starfsfólks sveitarfélagsins færir Sigríði Guðrúnu þakkir fórnfúst starf í þágu samfélagsins í Fjallabyggð og óskar henni velfarnaðar í hverju því sem hún ákveður að taka sér fyrir hendur. "

S.Guðrún Hauksdóttir kvaddi sér hljóðs og bókaði eftirfarandi:

"Það hefur verið bæði forréttindi og ánægja að fá að starfa fyrir sveitarfélagið okkar í öll þessi ár. Fjallabyggð er einstakt samfélag, einstakt vegna kraftsins sem býr í fólkinu hér. Þið hafið sýnt mér traust og samstöðu, og fyrir það verð ég ávallt þakklát.

Ég hef átt þann heiður að starfa með frábæru fólki í sveitarstjórn síðastliðin 16 ár. Við höfum tekist á við verkefni stór og smá, ekki alltaf sammála um leiðir, en ávallt sammála um það markmið, að vinna fyrir samfélagið okkar og vil ég nota tækifærið og þakka samferðafólkinu í gegnum öll þessi ár fyrir samstarfið, einnig vil ég færa starfsfólki Fjallabyggðar sérstakar þakkir.

Ég óska nýkjörnum fulltrúum til hamingju með kjörið. Sveitarstjórnarstarfið er ábyrgðarmikið en um leið gefandi, og mér hefur ávallt fundist það styrkja samfélagið þegar fólk með ólík sjónarmið býður sig fram. Ég óska þeim góðs gengis í þeim verkefnum sem fram undan eru og vona að starfið verði þeim jafn lærdómsríkt og það hefur verið mér."

Fundi slitið - kl. 19:00.