Bæjarráð Fjallabyggðar

911. fundur 05. mars 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Þjónustustefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 2602054Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um mótun þjónustustefnu sveitarfélaga en samkvæmt sveitarstjórnarlögum eiga sveitarfélög að vinna að slíkri stefnu.
Samþykkt
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja undirbúning að mótun þjónustustefnu Fjallabyggðar og skila til ráðsins tillögum að tímasettri áætlun.

2.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2603004Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.
Niðurstaða færð í trúnaðarbók

3.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Fram hafa komið hugmyndir nú um framtíðaruppbyggingu á svæðinu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leita frekari upplýsinga.

4.Fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni 2026

Málsnúmer 2603001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Fjallgörðum Íslands þar sem kynnt er hugmynd að fljótandi gufubaði á Ólafsfjarðarvatni fyrir landi Brekkulands. Óskað er eftir afstöðu og umsögn Fjallabyggðar til hugmyndarinnar í samræmi við fyrirliggjandi gögn en ekki er gert ráð fyrir rennandi heitu vatni í gufubaðið heldur að það verði svokölluð þurrgufa þar sem gufan er framkölluð með hitara og vatni sem hellt er yfir heita steina.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi hugmyndir fyrir sitt leyti með fyrirvara um að óska þarf umsagna frá Umhverfisstofnun og Veiðifélagi Ólafsfjarðar.

5.Ársþing SSNE 2026

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boðun á ársþing SSNE sem fram fer 26.mars n.k. í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir febrúar 2026. Áfallinn launakostnaður er 95,1% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2603006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð vegna aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fer 20.mars n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.