Bæjarráð Fjallabyggðar

917. fundur 27. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Þjóðvegur í þéttbýli, Ólafsfirði, 3 áfangi

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Opnun tilboða í “Ólafsfjörður - Þjóðvegur í þéttbýli, áfangi 3" fór fram þann 15.04.2026 kl 10:00
Viðstaddir opnun var fulltrúi Bás ehf, Magnús Tómasson ásamt sviðsstjóra.

Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:

Bás ehf kr. 65.809.983,- 92,4% af áætlun
Sölvi Sölva kr. 84.631.625,- 118,8% af áætlun
Smárinn ehf kr. 68.467.270,- 96,1% af áætlun

Kostnaðaráætlun verksins var kr. 71.223.100

Sviðsstjóri leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Bás ehf, sem stenst kröfur útboðsins.


Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögur sviðsstjóra um að taka tilboði lægstbjóðanda, Bás ehf. kr. 65.809.983,-, í verkið og felur sviðsstjóra að ganga frá verksamningi með skýrum verklokum.

2.Tjaldsvæðið Ólafsfirði

Málsnúmer 2407050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga framkvæmdasviðs að áfangaskiptingu á framkvæmdum við tjaldsvæðið í Ólafsfirði.
Samþykkt
Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna verkið áfram í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir að áfangaskiptingu og í samráði við rekstraraðila tjaldsvæðisins.

3.Innköllun hluta lóðarinnar Brimnes undir nýjan kirkjugarð

Málsnúmer 2405057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur álit lögmanns Fjallabyggðar á kröfum Sigurjóns Magnússonar vegna innköllunar á hluta lóðarinnar Brimnes undir nýjan kirkjugarð. Jafnframt liggur fyrir mat sviðsstjóra á kostnaði sem Sigurjón telur að hann hafi orðið fyrir vegna innköllun lóðarinnar.
Samþykkt
Legið hefur fyrir frá því staðsetning nýs kirkjugarðs var samþykkt að innkalla þyrfti hluta lóðar í Brimnesi. Samkvæmt lóðarleigusamningi ber Fjallabyggð að greiða lóðarhafa útlagðan kostnað vegna framkvæmda og fasteigna á innkallaðri lóð. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lóðarhafa um að Fjallabyggð greiði hluta krafna vegna framkvæmda og fasteigna á lóðinni í samræmi við mat framkvæmdasviðs. Upphaflegar kröfur námu 6,4 milljónum króna.

4.Knatthús í Fjallabyggð

Málsnúmer 2508022Vakta málsnúmer

Áætlað er að tilboð í knatthús verði opnuð þann 8.maí n.k. en fjölmargar fyrirspurnir hafa verið um útboðið. Í ljósi fyrirliggjandi gagna veitir bæjarráð heimild til þess að í útboði verði heimilt að leggja fram frávikstilboð sem snúa að framkvæmdatíma en nokkrir aðilar hafa óskað eftir að leggja fram frávikstilboð. Lengdur framkvæmdatími á því að reisa húsið hefur óveruleg áhrif á afhendingu þess fullbúnu og tilbúnu til notkunar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að veita Verkís, sem tekur við tilboðum í verkið, heimild til þess að taka á móti frávikstilboðum er snúa að framkvæmdatíma og lengja skilafrest í samræmi við ný ákvæði í útboðinu.

5.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Fyrir liggja erindi frá annars vegar Kristínu Lárusdóttur og hins vegar frá Samúel Hansen f.h. íbúa austan fjarðar á Siglufirði vegna þyrluumferðar og umsvifa við flugvöllinn þar sem lýst er áhyggjum vegna hljóðmengunar og fleira.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar Kristínu Lárusdóttur og Samúel Hansen, f.h. íbúa austan fjarðar, fyrir erindi þeirra vegna Siglufjarðarflugvallar og þyrluflugs. Bæjarráð tekur undir ábendingar og áhyggjur íbúa um val á flugleiðum og flughæðir - það hljóti í góðu samstarfi og samtali að vera hægt að finna verklag þar sem tekið er tillit til allra hagaðila. Bæjarráð minnir hins vegar á að loftferðir hvers konar liggja utan valdheimilda sveitarfélaga og því ekki á verksviði sveitarfélaga að setja reglur um þær með beinum hætti. Bæjarráð felur hins vegar bæjarstjóra að kanna með hvaða hætti Fjallabyggð getur sett reglur um lágflug t.d. yfir frístundabyggðum, íbúasvæðum sem og griðlöndum fugla.
Bæjarráð vil enn fremur minna á að flugvallarsvæðið á Siglufirði er skipulagt sem flugvöllur og hafi verið um langa hríð. Að lokum vill bæjarráð leggja áherslu á að ekki liggja fyrir drög að neinu samkomulagi um sölu eigna á flugvallarsvæðinu.

6.Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026

Málsnúmer 2604041Vakta málsnúmer

Boðað er til aðalfundar Landskerfis bókasafna hf. þriðjudaginn 12. maí, kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum félagsins að Katrínartúni 4, jarðhæð, 105 Reykjavík.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Breyting á heilbrigðiseftirliti 2026

Málsnúmer 2602035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til Umhverfis - og samgöngunefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. - mál nr. 582. þskj. 984 á 157. löggjafarþingi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Íþróttamál og íþróttamannvirki

Málsnúmer 2406001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur svohljóðandi áskorun á bæjaryfirvöld Fjallabyggðar frá aðalfundi KF:
"Félagsmenn fagna eindregið að byggt verði knatthús á vallarstæði félagsins í Ólafsfirði, sem muni bæta æfingaraðstöðu félagsins til mikillar muna og vona að húsið verði tilbúið næsta vetur, einnig brýnir fundurinn bæjarstjórn að viðhalda grasvellinum vel og hann verði sveitarfélaginu til sóma og geti nýst félaginu til æfinga og keppnisaðstöðu yfir sumartímann."
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:15.