Bæjarráð Fjallabyggðar

914. fundur 30. mars 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Í kjölfar auglýsingar um hugmyndir varðandi nýtingu fasteigna í eigu Fjallabyggðar á flugvallarsvæðinu á Siglufirði liggja fyrir þrjár grófar hugmyndir að framtíðarnýtingu.
Viking Heliskiing lýsir áhuga á að kaupa eignir Fjallabyggðar og gera svæðið að lykilinnviði í áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu á Tröllaskaga og í Fjallabyggð með starfsemi fyrirtækisins á sviði þyrluþjónustu í huga.
Georg Páll Kristinsson lýsir yfir áhuga á nýtingu svæðisins og fasteigna í rekstur með vistvænum brennsluofni.
Þriðja hugmyndin er almenn og snýr að nýtingu svæðisins og fasteigna fyrir ýmis konar samkomur, tónleikahald, listsýningar og fleira.

Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Viking Heliskiing um mögulega framtíðaruppbyggingu á flugvallarsvæðinu á Siglufirði og kaup á eignum Fjallabyggðar á svæðinu enda samræmast hugmyndir fyrirtækisins tillögum starfshóps um framtíðaruppbyggingu flugvallarsvæðisins frá árinu 2022.

2.Aðalfundur Cruise Iceland 2026

Málsnúmer 2603034Vakta málsnúmer

Á aðalfundi Cruise Iceland var samþykkt að tilnefna Anitu Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafnsins, sem varafulltrúa í stjórn f.h. Fjallabyggðarhafna.
Samþykkt
Bæjarráð staðfestir skipan Anitu Elefsen sem varafulltrúa í stjórn Cruise Iceland fyrir hönd Fjallabyggðarhafna.

3.Sveitarfélag ársins 2026

Málsnúmer 2603045Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Mannauðssjóðnum Heklu og Gallup þar sem sveitarfélögum er boðin þátttaka í könnun á meðal starfsmanna um starfsemi sveitarfélaganna. Kostnaður við þátttöku Fjallabyggðar er um 1 milljón króna.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir þátttöku í könnuninni „Sveitarfélag ársins 2025“ og kostnað sem könnuninni fylgir.

4.Umsagnarbeiðni tímabundið áfengisleyfi - L7

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur uppfærð umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga frá L-7 ehf vegna páskaskemmtunar í Skarðsdal
Umsækjanda láðist að óska eftir leyfi til útiveitinga, þ.e. veitingasala fari fram í sölutjaldi við skíðaskála og þar verði einnig afmarkað veitingasvæði (neyslusvæði) þar sem verða borð og bekkir.

Allar jákvæðar umsagnir höfðu borist við fyrri beiðni, óskað er eftir að veitt verði umsögn vegna þessarar breyttu forsenda.
Samþykkt
Meirihluti bæjarráðs gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

Helgi Jóhannsson greiðir atkvæði á móti og óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi áfengissölu og íþróttir barna ekki eiga samleið.

5.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar um 4 mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 82. fundar SSNE
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir frá nefndum og ráðum Fjallabyggðar til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.