Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

338. fundur 18. nóvember 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Pálmi Blængsson aðalm.
  • Jón Valgeir Baldursson aðalm.
  • Stefán Júlíusson aðalm.
  • Viktor Freyr Elísson aðalm.
  • Klara Mist Pálsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
  • Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Umsókn til skipulagsfulltrúa - Aðalgata 15

Málsnúmer 2606069Vakta málsnúmer

Aðalgata 15, 625 Ólafsfirði. Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Samþykkt
Nefndin samþykkir breytinguna fyrir sitt leiti. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á aðalskipulagi skv 2.mgr 36.gr skipulagslaga nr 123/2010

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Laugarvegur 10 - Flokkur 2

Málsnúmer 2610092Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu þaks að Laugarvegi 10, 580 Siglufirði sem fauk af í óveðri þann 14.10.2026
Samþykkt
Nefndin samþykkir byggingaráformin og mun byggingarfulltrúi gefa út byggingarleyfi þegar skilyrði 2.4.4.gr. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Brekkuland 150882 - Flokkur 1

Málsnúmer 2611038Vakta málsnúmer

Umsón um leyfi fyrir smáhýsum í landi Brekkulands, 626 Ólafsfirði
Afgreiðslu frestað
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
Erindi frestað, skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

4.Umsókn um byggingu á skýli við Múlagöng

Málsnúmer 2611045Vakta málsnúmer

Skotfélag Ólafsfjarðar óskar eftir leyfi til að byggja yfir skýli við Múlagöng skv. meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt
Aðalmaður H - lista víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
Erindi samþykkt með fyrirvara um leyfi Vegagerðarinnar.

5.Fyrirspurn um leyfi fyrir bílskúr, Hlíðarvegur 16

Málsnúmer 2611020Vakta málsnúmer

Fyrirspurn um leyfi til byggingar bílskúrs að Hlíðarvegi 16, 580 Siglufirði
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin aðliggjandi lóðarhöfum á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hvanneyrarbraut 36 - Flokkur 1

Málsnúmer 2611018Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu þaks að Hvanneyrarbraut 36, 580 Siglufirði sem fauk af í óveðri þann 14.10.2026
Samþykkt
Nefndin samþykkir byggingaráformin og mun byggingarfulltrúi gefa út byggingarleyfi þegar skilyrði 2.4.4.gr. byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.

7.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi að Lindargötu 26

Málsnúmer 2611021Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Lindargötu 26, 580 Siglufirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Samþykkt.

8.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamning að Suðurghötu 57

Málsnúmer 2611025Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Suðurgötu 57, 580 Siglufirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins
Samþykkt
Samþykkt.

9.Fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa vegna sameiningar á lóðum.

Málsnúmer 2611047Vakta málsnúmer

Ósk um sameiningu lóða.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin leggur til að unnin verði merkjalýsing fyrir lóðirnar, Suðurgötu 16, 18, 20 og Lindargötu 13, 15 og 17 í samráði við lóðarhafa, með tilliti til umbeðnar sameiningar.

10.Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings að Bylgjubyggð 27-35

Málsnúmer 2611046Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Bylgjubyggðar 27-35, 625 Ólafsfirði. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins
Samþykkt
Samþykkt.

11.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Umsókn um gerð nýs lóðarleigusamnings vegna Flugvallarsvæðisins á Siglufirði. Lögð er fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins
Samþykkt
Samþykkt.

12.Fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni 2026

Málsnúmer 2603001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Fjallgörðum Íslands þar sem kynnt er hugmynd að fljótandi gufubaði á Ólafsfjarðarvatni í landi Brekkulands. Óskað er eftir framkvæmdarleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Afgreiðslu frestað
Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.
Nefndin frestar málinu þangað til að fullnægjandi gögn hafa borist.

13.Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Fjarðará

Málsnúmer 2610086Vakta málsnúmer

Veiðifélag Ólafsfjarðar óskar eftir leyfi til efnistöku við Fjarðará í Ólafsfirði.
Samþykkt
Nefndin samþykkir framkvæmdina fyrir sitt leyti.

14.Ástand húseigna Fjallabyggðar

Málsnúmer 2611048Vakta málsnúmer

Ástand húseigna almennt í sveitarfélaginu
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Umhverfis- og skipulagsnefnd Fjallabyggðar telur mikilvægt að tryggja öryggi fólks og annara mannvirkja gagnvart mannvirkjum sem kunna að vera í hættulegu ástandi, auk þess að stuðla að bættu viðhaldi fasteigna og snyrtilegri ásýnd byggðarinnar.
Nefndin samþykkir að fela byggingarfulltrúa að hefja skipulega athugun á fasteignum og mannvirkjum í sveitarfélaginu þar sem ástandi, frágangi eða viðhaldi er verulega ábótavant eða grunur er um að hætta geti stafað af þeim fyrir nærumhverfi.
Sérstök áhersla verði lögð á mannvirki þar sem hætta kann að skapast vegna lausra byggingarhluta, þakklæðninga eða annars frágangs í hvassviðri.
Byggingarfulltrúa verði jafnframt falið að meta þörf á formlegum fyrirmælum um úrbætur og eftir atvikum beitingu þeirra úrræða sem heimiluð eru samkvæmt 56. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og 2.9.2. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Nefndin óskar eftir að byggingarfulltrúi leggi fram stöðuyfirlit og tillögur að samræmdu verklagi innan þriggja mánaða.
Samþykkt að vísa tillögunni til framkvæmdar og eftirfylgni hjá byggingarfulltrúa, með fyrirvara um viðeigandi ákvörðunarheimildir og fjárheimildir.

Fundi slitið - kl. 18:00.