04.05.2016
Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar auglýsa breyttan opnunartíma fimmtudaginn 5. maí, uppstigningardag. Opið verður sem hér segir:
Ólafsfjörður, 10:00 - 14:00
Siglufjörður, 14:00 - 18:00
Lesa meira
03.05.2016
Skráning er hafin í Vinnuskóla Fjallabyggðar. Þau ungmenni sem eru fædd 1999, 2000, 2001 og 2002 geta skráð sig í Vinnuskóla Fjallabyggðar. Æskilegt er að viðkomandi eða a.m.k. annað foreldri hafi lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi hafi stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.
Lesa meira
03.05.2016
Það er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi að börn fari á hjóli í skólann en í gær tóku nokkrir nemendur úr 6. og 7. bekk sig til og hjóluðu í skólann. Nemendurnir eru allir búsettir á Siglufirði og fara að öllu jöfn með skólarútunni til Ólafsfjarðar en í gær ákváðu þau að fara á hjóli. Ferðin tók um 55 mínútur og verður örugglega endurtekin að þeirra sögn.
Lesa meira
02.05.2016
Miðvikudaginn næstkomandi, þann 4. maí, verður opið hús í Grunnskóla Fjallabyggðar þar sem verk nemenda verða til sýnis. Opið verður sem hér segir:
Lesa meira
28.04.2016
Þriðjudaginn 26. apríl stóð Menningarhúsið Tjarnarborg fyrir sýningu fyrir leikskólabörn og nemendur í 1.-4. bekk. Leikhópurinn Lotta mætti á svæðið og flutti söngvasyrpu leikhópsins.
Lesa meira
28.04.2016
Á þröskuldi breytinga - Þróun landbúnaðar við Eyjafjörð og framtíðarhorfur
Lesa meira
28.04.2016
Sökum dræmrar þátttöku á málþing um skólamál sem vera átti í Tjarnarborg í kvöld kl. 18:00 hefur verið tekin ákvörðun um hætta við það og er í skoðun að gera aðra tilraun með svona þing næsta haust. Það verða að teljast mikil vonbrigði að aðeins 11 aðilar hafi sýnt því áhuga að mæta í kvöld og erfitt að trúa því að það séu ekki fleiri sem vilja nýta þennan vettvang til að hafa áhrif á bætt skólastarf í Fjallabyggð.
Lesa meira
26.04.2016
Sunnudaginn 1. maí kl. 15:00 opnar Lefteris Yakoumakis sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Yfirskrift sýningarinnar er "Það er enginn Guð vestur af Salina", og fjallar um ferð listamannsins frá Kansas til Kóloradó í Bandaríkjunum.
Lesa meira
26.04.2016
Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar, í samstarfi við lögregluna á Norðurlandi eystra, boðar til fræðslufundar um eiturlyf og stöðuna á Norðurlandi, miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 20:00 í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Lesa meira
25.04.2016
Boðað er til aukafundar í Bæjarstjórn Fjallabyggðar. 131. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði, 26. apríl 2016 og hefst kl. 17:15
Lesa meira