Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

177. fundur 05. febrúar 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varamaður, S lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Deiliskipulag Leirutanga

Málsnúmer 1501084Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að lýsingu vegna skipulagsvinnu við Leirutanga, þar sem gert verður ráð fyrir tjaldsvæði, athafnasvæði, útivistarsvæði og fuglafriðlandi. Nefndin gekk frá kaflanum "Áherslur skipulags- og umhverfisnefndar" og leggur til að lýsingin verði samþykkt og auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

2.Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015 - 2026

Málsnúmer 1412054Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillögu skipulagsstofnunar að landsskipulagsstefnu 2015-2026.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

3.Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar

Málsnúmer 1502012Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Verkís fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar. Þar er kynnt breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Gönguskarðsárvirkjunar. Athugasemdir vegna þessa skulu berast fyrir 11.febrúar til skipulags- og byggingarfulltrúa Skagafjarðar.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

4.Heimsókn Sirkus Íslands

Málsnúmer 1502011Vakta málsnúmer

Sirkus Íslands kannar möguleika á að vera með sýningu í Fjallabyggð á tímabilinu 28.júlí-10.ágúst.

Nefndin fagnar komu Sirkus Íslands í Fjallabyggð og bendir á að sýningahald er mögulegt í báðum byggðarkjörnum.

5.Umsókn um lóðirnar Ránargata 2 og 12, Siglufirði

Málsnúmer 1502014Vakta málsnúmer

Bás ehf. sækir um úthlutun á lóðum nr. 12 og 2 við Ránargötu á Siglufirði. Hugmyndir Bás ehf. er að reisa iðnaðarhúsnæði á lóð nr.12. Á lóð nr. 2 eru uppi hugmyndir um að þar verði steypustöð og efnisvinnsla ásamt efnisgeymslu.

Nefndin samþykkir að úthluta Bás ehf. lóð nr.12 við Ránargötu. Lóð nr.2 er ekki hæf til úthlutunar fyrr en búið er að ganga frá lóðinni í samræmi við deiliskipulag.

6.Gjaldskrár 2015

Málsnúmer 1412012Vakta málsnúmer

Lagðar fram breytingar á gjaldskrám fyrir þjónustumiðstöð, vatnsveitu og fráveitu. Breytingin felur í sér viðbót vegna útseldrar vinnu starfsmanna.

Erindi samþykkt.

7.Framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörnum á Siglunesi

Málsnúmer 1301032Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Vegagerðinni. Þar kemur fram að Vegagerðin stefni að því að hefja framkvæmdir sjóvarna á Siglunesi sem fyrst, þar sem öll tilskilin leyfi og skilyrði hafi verið uppfyllt.

Fundi slitið.