Heimsókn Sirkus Íslands

Málsnúmer 1502011

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 177. fundur - 05.02.2015

Sirkus Íslands kannar möguleika á að vera með sýningu í Fjallabyggð á tímabilinu 28.júlí-10.ágúst.

Nefndin fagnar komu Sirkus Íslands í Fjallabyggð og bendir á að sýningahald er mögulegt í báðum byggðarkjörnum.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 185. fundur - 10.06.2015

Sirkus Íslands sækir um afnot af landi sem tilheyrir Fjallabyggð til að reisa þar sirkustjald sitt á Síldarævintýrinu. Svæðið sem um ræðir er við norðausturhluta malarvallarins við Túngötu og Þormóðsgötu.

Erindi samþykkt.