Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

244. fundur 04. september 2019 kl. 16:30 - 18:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Konráð Karl Baldvinsson formaður I lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir varaformaður, D lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Helgi Jóhannsson aðalmaður, H lista
  • Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir aðalmaður, I lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir skipulags- og tæknifulltrúi

1.Viðbrög Minjastofnuna vegna seltófta sunnan Selgils

Málsnúmer 1907038Vakta málsnúmer

Nefndarmenn byrjuðu fundinn á vettvangsferð við Selgil.
Nefndin óskar eftir aðstoð Minjastofnunar um nánari staðsetningu tiltekinna fornleifa vegna úrvinnslu málsins.

2.Tjarnargata 12 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 1906025Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Tjarnargötu 12 sem er hluti af deiliskipulagi hafnarsvæðis frá 15.4.1998. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits að hluta til austurs og settir fram skilmálar um hámarkshæð og nýtingarhlutfall. Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna sem grenndarkynnt var aðliggjandi lóðarhöfum í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu og felur tæknideild afgreiðslu málsins í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Deiliskipulag íþróttasvæðis í Ólafsfirði

Málsnúmer 1908032Vakta málsnúmer

Lögð fram skipulagslýsing sem er upphaf vinnu við deiliskipulag íþróttasvæðis í Ólafsfirði.
Tæknideild falið að kynna skipulagslýsinguna í samræmi við 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

4.Umsókn um stöðuleyfi vegna stýrishúss

Málsnúmer 1907032Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju umsókn Síldarminjasafns Íslands um stöðuleyfi fyrir stýrishús á lóðinni Snorragötu 20.
Nefndin samþykkir stöðuleyfi stýrishúss á lóð Síldarminjasafnsins.

5.Mararbyggð 41 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1908031Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 19. ágúst 2019 þar sem Ármann V. Sigurðsson og Elín S. Friðriksdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Mararbyggð 41 í Ólafsfirði.
Erindi samþykkt.

6.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1908028Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi dagsett 16. ágúst 2019 þar sem Röggur fasteignafélag ehf. sækir um leyfi til að skrá íbúðir í húsi við Eyrargötu 27 á tvö fastanúmer. Í dag eru íbúðirnar skráðar á eitt fastanúmer.
Erindi samþykkt.

7.Umsókn um byggingarleyfi-bílskúr á Ólafsvegi 48

Málsnúmer 1909013Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 3.september 2019 þar sem Rúnar Gunnarsson sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr við Ólafsveg 48 auk stækkun lóðar um 8 metra til austurs.
Þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu er tæknideild falið að grenndarkynna tillöguna aðliggjandi lóðarhöfum í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

8.Lyftuskúr og stækkun flatar í Tindaöxl

Málsnúmer 1908042Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Kristjáns Haukssonar f.h. Skíðafélags Ólafsfjarðar dagsett 20. ágúst 2019. Óskað er eftir leyfi til að stækka flöt sem hefur verið notuð sem marksvæði/leikvangur í skíðagöngubraut félagsins undanfarin ár. Einnig er óskað eftir leyfi til að reisa nýjan lyftuskúr við toglyftuna í Tindaöxl skv. meðfylgjandi teikningum.
Nefndin samþykkir leyfi til að reisa nýjan lyftuskúr en óskar eftir nánari upplýsingum um framkvæmd til stækkunnar marksvæðis göngubrautar.

9.Skógrækt Menntaskólans á Tröllaskaga

Málsnúmer 1908016Vakta málsnúmer

Lagt fram að nýju erindi Láru Stefánsdóttur f.h. Menntaskólans á Tröllaskaga þar sem óskað er eftir framtíðarsvæði nærri skólanum til gróðursetningar.
Nefndin fagnar frumkvæði MTR að kolefnisjöfnun í Fjallabyggð og leggur til að MTR gróðursetji á gönguskíðasvæði í samráði við Skógræktarfélag og Skíðafélag Ólafsfjarðar.

10.Vegur við varnargarðinn norðan Ránargötu

Málsnúmer 1908030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Gests Þórs Guðmundssonar þar sem hann bendir á illa farinn veg meðfram sjóvarnargarði norðan Ránargötu á Siglufirði. Lagt er til að vegurinn verði lokaður og breytt í göngustíg.
Nefndin tekur vel í erindið og felur tæknideild að grenndarkynna hugmynd að lokun götunnar fyrir aðliggjandi byggð.

Fundi slitið - kl. 18:20.