Fjölmenningardagur VMST

Málsnúmer 2609028

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

Skýrsla vegna fjölmenningardags VMST
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir helstu niðurstöður Fjölmenningardags um mikilvægi þess að efla íslenskukennslu og snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna. Nefndin leggur sérstaka áherslu á að skólar og frístundastarf gegni lykilhlutverki í inngildingu, félagslegri þátttöku og jöfnun tækifæra barna. Mikilvægt er að tryggja gott upplýsingaflæði til foreldra, stuðla að virkri þátttöku barna í skóla- og frístundastarfi og efla samstarf skóla, frístundastarfs og annarrar þjónustu sveitarfélagsins.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 12. fundur - 08.10.2026

Skýrsla vegna fjölmenningardags VMST lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Skýrslan lögð fram til kynningar. Sviðsstjóri nefndi fjölmenningarverkefni sem er nú til sýnis í Brimsölum og því fylgir heimasíða og rafbók.

https://read.bookcreator.com/shiPz10AFrZFg1IxWzHHwx1FxSY2/9TvO0GyMQNGNiFAK6e7nmg/ENFQZjRdTiiLzFGGzOGJdg?utm_source=chatgpt.com