Áskorun frá Siglingasambandi Íslands - verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

Málsnúmer 2603008

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 912. fundur - 12.03.2026

Fyrir liggur erindi frá Siglingasambandi Íslands sem send er á sveitarfélög landsins þar sem skorað er á sveitarfélögin að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum og huga jafnframt að því að styðja við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og stranda.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 159. fundur - 23.03.2026

Erindi frá Siglingasambandi Íslands
Lagt fram til kynningar
Siglingasamband Íslands hvetur sveitarstjórnir til að tryggja félögum sem stunda sjótengda starfsemi viðunandi aðstöðu, aðgang að sjó, aðstöðu til geymslu búnaðar og gera ráð fyrir starfsemi þeirra í skipulagi.

Jafnframt vill SÍL vekja athygli á mikilvægi þess að sveitarfélög styðji markvisst við íþróttafélög og aðra starfsemi sem nýtir sjó og strönd. Siglingar, róður, kajak, brimbretti og sjósund efla lýðheilsu, færni og auka tengsl fólks við náttúruna.