Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

73. fundur 12. ágúst 2019 kl. 16:30 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Gauti Már Rúnarsson aðalmaður, D lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála

1.Umbótaáætlun Leikskóla Fjallabyggðar 2018

Málsnúmer 1803067Vakta málsnúmer

Umbótaáætlun Leikskóla Fjallabyggðar 2018, sem gerð var í kjölfar ytra mats, var lögð fram til kynningar. Umbótaáætlun var skilað til Mennta- og menningarmálaráðuneytis í júní sl. Áfram verður unnið að umbótum samkvæmt umbótaáætlun og mun ráðuneytið kalla eftir stöðu umbóta í maí 2020.

2.Skólabyrjun leikskólans 2019-2020

Málsnúmer 1908009Vakta málsnúmer

Skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar fór yfir skólabyrjun á þessu skólaári en fyrsti dagur eftir sumarfrí var 6. ágúst.

3.Umbótaáætlun Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1604017Vakta málsnúmer

Umbótaáætlun Grunnskóla Fjallabyggðar 2018, sem gerð var í kjölfar ytra mats, var lögð fram til kynningar. Umbótaáætlun var skilað til Mennta- og menningarmálaráðuneytis í júní sl. Unnið hefur verið að umbótum í kjölfar ytra mats síðan árið 2016 og er nú öllum umbótaþáttum í áætluninni lokið. Ekki verður um frekari eftirfylgni að ræða frá ráðuneytinu.

4.Breyting á stjórnun Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1907001Vakta málsnúmer

Aðstoðarskólastjóri sagði starfi sínu lausu í sumar. Breyting var gerð á stjórnun grunnskólans og verða tveir deildarstjórar ráðnir í stað aðstoðarskólastjóra. Þeir munu hafa aðsetur í sitt hvorri starfsstöðinni.

5.Skólabyrjun grunnskólans 2019-2020

Málsnúmer 1908008Vakta málsnúmer

Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar fór yfir skólabyrjun á þessu skólaári en skólasetning verður með hefðbundnum hætti 23. ágúst nk.

6.Sérfræðiaðstoð Tröppu. Stöðuskýrsla sumar 2019

Málsnúmer 1907040Vakta málsnúmer

Í janúar sl. hófst vinna við endurgerð sýnar og stefnu grunnskólans í samstarfi við Tröppu ehf. Skýrsla um stöðu verkefnis var lögð fram til kynningar.

7.Samingur um skóla- og frístundaakstur 2019-2022

Málsnúmer 1908011Vakta málsnúmer

Samningur við Suðurleiðir ehf. um skóla- og frístundaakstur 2019-2022 var lagður fram til kynningar. Samið er til þriggja ára og tekur nýr samningur gildi 20. ágúst nk.

Fundi slitið - kl. 18:00.