Bæjarstjórn Fjallabyggðar

276. fundur 17. september 2026 kl. 17:00 - 18:25 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Jóhann K. Jóhannsson forseti
  • Helgi Jóhannsson 1. varaforseti
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalfulltrúi
  • Kristinn Kristjánsson aðalfulltrúi
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir aðalfulltrúi
  • Sæunn Gísladóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson staðgengill bæjarstjóra
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson Staðgengill bæjarstjóra
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu með afbrigðum fundargerð bæjarráðs frá 17. september 2026.

Guðrún Sif Guðbrandsdóttir, D-lista, gerði athugasemd við skamman fyrirvara á að taka til afgreiðslu fundargerðina og óskaði eftir að gert yrði fundarhlé síðar á fundinum áður en fundargerðin yrði tekin til afgreiðslu.

Samþykkt með 7 atkvæðum að taka til afgreiðslu með afbrigðum fundargerð bæjarráðs frá 17.september 2026.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026

Málsnúmer 2608011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Viðauki við fjárhagsáætlun 2026), lið 3 (Stækkun fráveitu - Primex) og lið 5 (Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar) sem bornir eru upp sérstaklega.

Guðrún Sif Guðbrandsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu á lið 3 í fundargerðinni, "Stækkun fráveitu - Primex".
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 3 og 5 samþykkt með 7 atkvæðum.

Liður 1 samþykktur með 7 atkvæðum
Liður 3 samþykktur með 6 atkvæðum
Liður 5 samþykktur með 7 atkvæðum
  • 1.2 2605003 Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Bæjarráð samþykkir framlagða tilfærslu milli liða að fjárhæð 10 mkr vegna tjaldsvæðisins í Ólafsfirði. Hann er til kominn vegna þess að kaupa þurfti allar þökur en til stóð að nýta gras þar sem fyrirhugað knatthús mun rísa. Einnig voru lagðar lagnir til að bregðast við vatnssöfnun í miklum rigningum og að hægt sé að dæla vatni í gegnum þær lagnir og einnig var bætt við rafmagnstenglum. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum
  • 1.3 2410007 Stækkun fráveitu - Primex
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Framkvæmdum við lagfæringu á útrás við Primex vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Stefnt er að því að fara í framkvæmdina sem fyrst á næsta ári og löngu tímabært að þessu máli verði lokað. Bókun fundar Samþykkt með 6 atkvæðum
  • 1.5 2201012 Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Landhelgisgæsluna og fagnar því að Freyja eigi áfram heimahöfn á Siglufirði sem er mikilvægt vegna markmiðs aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum meðal annars með uppbyggingu björgunarmiðstöðvar.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt eftirfarandi áskorun:

    "Í ljósi mikils álags á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar undanfarin misseri tekur bæjarráð Fjallabyggðar undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri og jákvæða umsögn Landhelgisgæslunnar um málið.

    Í umsögn Landhelgisgæslunnar kemur fram að föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri yrði bylting í björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu. Með henni væri unnt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla verulega viðbragð á norður- og austurmiðum og hálendinu. Landhelgisgæslan hafði fulla viðbragðsgetu aðeins 61% ársins 2025 og telur óskynsamlegt að flytja eina núverandi þyrlu til Akureyrar án þess að fjölga þyrlum og áhöfnum.

    Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja við næstu fjárlagagerð fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. Jafnframt verði hafið árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð að markmiði.

    Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu."
    Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 931. fundur - 3. september 2026

Málsnúmer 2608012FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 2 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) sem borinn er upp sérstaklega.

Samþykkt
Til máls tóku undir lið 2 í fundargerðinni: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir, Kristinn Kristjánsson, Jóhann K. Jóhannsson, Tómas Atli Einarsson og Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.






  • 2.2 2510036 Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 931. fundur - 3. september 2026 Fulltrúar H-lista og S-lista leggja til að umsóknum um rekstur skíðasvæðisins verði öllum hafnað og að sveitarfélagið sjái sjálft um rekstur skíðasvæðisins á komandi vetri. Svæðið er nú komið í eigu Fjallabyggðar og til þess að fá betri tilfinningu fyrir rekstrinum teljum við nauðsynlegt að sveitarfélagið sjái um rekstur svæðisins amk næsta vetur. Farið verður í gerð rekstraráætlunar fyrir svæðið nú í kjölfarið.

    Fulltrúi D-lista bókaði eftirfarandi:
    „Fulltrúi D-lista í bæjarráði leggst gegn því að öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal verði hafnað og að Fjallabyggð taki sjálf yfir reksturinn.

    Ákvörðun um eigin rekstur sveitarfélagsins er tekin áður en fyrir liggja rekstraráætlun, kostnaðarmat, mannaflaáætlun eða greining á þeirri fjárhagslegu og rekstrarlegu áhættu sem honum fylgir. Sú röksemd að sveitarfélagið þurfi að reka svæðið til að „fá betri tilfinningu fyrir rekstrinum“ getur ekki talist fullnægjandi grundvöllur fyrir ákvörðun um ráðstöfun opinberra fjármuna.

    Áformin ganga jafnframt gegn samþykktri stefnumörkun Fjallabyggðar í íþróttamálum, þar sem gert er ráð fyrir útvistun á heildarumsjón og rekstri íþróttasvæða til íþróttafélaga og/eða verktaka með það að markmiði að nýta fagþekkingu og fjármuni betur.

    Fulltrúi D-lista styður áframhaldandi rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal. Það er hins vegar óforsvaranlegt að hafna öllum umsóknum og ákveða eigin rekstur sveitarfélagsins áður en rekstraráætlun, mannaflaáætlun og heildstætt kostnaðarmat liggja fyrir.

    Meirihlutinn hefur hvorki sýnt fram á hvers vegna umsóknirnar teljast ófullnægjandi né að eigin rekstur sveitarfélagsins sé hagkvæmari eða betur til þess fallinn að tryggja farsælan rekstur svæðisins.
    Með ákvörðuninni er bæjarsjóður látinn taka á sig ómetna fjárhagslega og rekstrarlega áhættu. Fulltrúi D-lista getur því ekki stutt tillöguna og telur rétt að afgreiðslu málsins verði frestað þar til fullnægjandi gögn og faglegur, rekjanlegur samanburður á kostunum liggja fyrir."

    Fulltrúar H-lista og S-lista bóka eftirfarandi:

    "Fulltrúar meirihlutans í bæjarráði geta ekki með nokkru móti skilið fullyrðingu bæjarráðsfulltrúa D-lista, Tómasar Atla Einarssonar, um að bæjarsjóður taki á sig „ómetna fjárhagslega og rekstrarlega áhættu“ með þessari ákvörðun.

    Það á varla að þurfa að rifja það upp fyrir bæjarráðsfulltrúa D-listans þær umtalsverðu fjárhæðir, sem á síðustu árum hafa runnið úr bæjarsjóði til þess að koma skíðasvæðinu í það horf sem það er komið. Auðvitað veit bæjarráðsfulltrúi D-listans hvernig í pottinn var búið þegar sveitarfélagið steig inn og tók fulla og rekstar- og fjárfestingalega ábyrgð á Skíðasvæðinu í Skarðsdal - þrátt fyrir að vera ekki á þeim tíma formlegur eigandi svæðisins. Bæjarráðs- og bæjarfulltrúi Tómas Atli var á síðasta kjörtímabili formaður verkefnahóps um framtíðaruppbyggingu í Skarðsdal og leysti það verkefni af mikilli ábyrgð og því kemur það núverandi meirihluta spánskt fyrir sjónir að hann telji nú „fjárhagslega og rekstrarlega áhættu“ sveitarfélagsins aðra en hún var þegar hann stýrði verkefnahópnum. Þær rekstrarforsendur sem lágu til grundvallar því að sveitarfélagið axlaði rekstar- og fjárfestingarlega ábyrgð eru þær hinar sömu og komu frá umræddum verkefnahópi og öll síðasta bæjarstjórn studdi þ.m.t. hann sjálfur.

    Hið eina sem vakir fyrir meirihlutanum er að tryggja góðan og glæsilegan rekstur á Skíðasvæðinu og því er miður að fulltrúi D-listans leggist gegn fyrri gjörðum með lýðskrumi. Bæjarfulltrúar meirihlutans gera þá lágmarkskröfu að fulltrúi D-listans í bæjarráði sé samkvæmur sjálfum sér og noti ekki grunnsamfélagsþjónustu til þess að reyna að fella pólitískar smákeilur.

    Hvað rekstraráætlun varðar að þá er það ekki rétt hjá bæjarráðsfulltrúanum, Tómasi Atla, að ekki liggi fyrir rekstraráætlun, mannaflaáætlun og heildstætt kostnaðarmat. Slíkt var unnið fyrir núverandi rekstrarár og verður áætlun um reksturinn m.a. byggð á því. Einnig liggur fyrir að fara þarf í viðamiklar viðgerðir á snjótroðurum og óvíst hvenær þeir verði klárir. Með þá óvissu er óráð að ganga til samning við rekstraraðila.
    Að endingu skilja fulltrúar meirihlutans ekki hvernig bæjarráðsfulltrúi Tómas Atli getur haldið því fram að meirihlutinn telji umsóknir ófullnægjandi. Meirihlutinn hefur aldrei haldið slíku fram og frábiður sér slíkan málflutning."

    Tillaga um að hafna öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins og að sveitarfélagið sjái sjálft um rekstur skíðasvæðisins á komandi vetri samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.



    Bókun fundar Undir þessum lið óskaði Tómas Atli Einarsson, D-lista, eftir eftirfarandi bókun:

    "Ég, bæjarfulltrúi D-lista, óska eftir að eftirfarandi spurningar verði færðar til bókar og að þeim verði svarað skriflega. Jafnframt óska ég eftir að tilgreint verði hvenær svörin verða lögð fyrir bæjarráð:
    1.
    Hvaða gögn og samanburður á kostnaði, þjónustu og áhættu studdu ákvörðunina um eigin rekstur þegar hún var tekin 3. september?
    2.
    Hvers vegna fékk ég ekki skriflega lögfræðiráðgjöf fyrir afgreiðsluna, hvernig samræmdist það upplýsingarétti mínum og hvaða áhrif hafði ráðgjöfin á niðurstöðuna?
    3.
    Hver ákvað að synja mér um viðbótarbókun, á hvaða reglum og viðmiðum byggðist synjunin og hvernig verður leiðréttingarkrafan afgreidd?
    4.
    Hvenær verður heildstæð rekstraráætlun með kostnaði, mönnun, ábyrgðarskiptingu og þjónustumarkmiðum lögð fyrir til afgreiðslu?"

    Liður 2 samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10. september 2026

Málsnúmer 2609001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 7 (Fljótagöng - Undirbúningur) sem er sér dagskrárliður á fundinum og lið 2 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku undir lið 5 í fundargerðinni: Kristín Ágústa Eiðsdóttir og Kristinn Kristjánsson.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 7, sem er sér dagskrárliður á fundinum, og lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.

Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.
  • 3.2 2510036 Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10. september 2026 Bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
    "Fulltrúi D-lista styður áframhaldandi rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal en gerir athugasemdir við undirbúning ákvörðunar um að hafna öllum umsóknum og fela sveitarfélaginu reksturinn.

    Skrifleg lögfræðiráðgjöf, sem nú er meðal fundargagna, lá fyrir við fyrri afgreiðslu málsins en hafði ekki verið afhent fulltrúa D-lista. Honum var þá aðeins gerð munnleg grein fyrir henni. Í skriflega svarinu er mælt með að vísa umleitunum eins umsækjanda frá, en ekki lagt til að öllum umsóknum verði hafnað eða að sveitarfélagið taki reksturinn yfir.

    Jafnframt er gerð athugasemd við frágang síðustu fundargerðar. Vegna sérstakra aðstæðna var fallist á skil bókana eftir fund. Bókun fulltrúa D-lista var send kl. 13:32 og fjórum mínútum síðar áskildi meirihlutinn sér rétt til svars. Viðbótarbókun meirihlutans barst rétt fyrir kl. 23 sama kvöld, um níu og hálfri klukkustund síðar, og innihélt ný efnisatriði og persónulegar ávirðingar.

    Beiðni fulltrúa D-lista um svigrúm til viðbragða var hafnað. Hann dró eigin viðbótarbókun síðan til baka þegar ljóst var að hún yrði ekki tekin inn, til að ljúka samskiptunum og færa umræðuna á næsta fund. Það fól ekki í sér samþykki við fyrri synjun eða mismunandi meðferð bókana.
    Fulltrúi D-lista hafnar ásökunum um lýðskrum og pólitískar smákeilur. Gagnrýni hans snýr að upplýstri ákvarðanatöku og ábyrgri meðferð fjármuna. Óskað er eftir formlegri, rökstuddri afgreiðslu á fyrirliggjandi leiðréttingarkröfu og skýringu á því hvaða fyrirkomulag gilti um skil bókana og lokun fundargerðar."

    Bæjarfulltrúar H og S-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
    "Bæjarráðsfulltrúa D-listans bauðst, eftir að honum var hafnað um seinni bókun á síðasta fundi, að taka málið upp á næsta fundi bæjarráðs sem hann gerir hér og þar með hefur hann haft tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum til skila. Samkomulag var á síðast bæjarráðsfundi um að bókanir yrðu lagðar fram eftir fund og komu báðir aðilar sjónarmiðum sínum á framfæri. Þar sem öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal var hafnað, þá mun ekki reyna á hæfi aðila í þessu máli."






    Bókun fundar Liður 2 samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17. september 2026

Málsnúmer 2609007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) og lið 4 (Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030).

Samþykkt
Fulltrúar D-lista óska eftir fundarhléi kl 17:51 og var fundi haldið áfram kl. 17:58.

Til máls tók Helgi Jóhannsson undir liðum 3 og 4.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 og lið 4 samþykkt með 7 atkvæðum.

Liður 1 í fundargerðinni samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.
Liður 4 í fundargerðinni samþykktur með 7 atkvæðum.
  • 4.1 2510036 Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17. september 2026 Bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

    "Fulltrúi D-listans telur að framlögð gögn sýni ekki fram á hagkvæmni þess að sveitarfélagið taki yfir rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal. Minnisblaðið lýsir fyrirhuguðu starfsmannahaldi en þar vantar mat á heildarkostnaði, tekjuforsendum og fjárhagslegri áhættu, auk samanburðar við aðrar rekstrarleiðir. Gögnin veita því ekki fullnægjandi grunn til að meta fjárhagslegar afleiðingar yfirtökunnar."

    Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að heimila að eftirfarandi störf verði auglýst:
    -Umsjónarmanns Skíðasvæðisins í Skarðsdal, 100% starf
    -Almennur starfsmaður, 100%
    -Tveir starfsmenn til að sinna vinnu á snjótroðurum.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá auglýsingu

    Bókun fundar Liður 1 í fundargerðinni samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.
  • 4.3 2605049 Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17. september 2026 Með því að halda hækkun á gjaldskrá í lágmarki og töluvert undir núverandi verðbólgu og verðbólguvæntingum þá leggur Fjallabyggð sitt lóð á vogarskálarnar að ná verðbólgu niður á næstu misserum.
    Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
    Bókun fundar Liður 4 í fundargerðinni samþykktur með 7 atkvæðum.

5.Öldungaráð Fjallabyggðar - 11. fundur - 8. september 2026

Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10. september 2026

Málsnúmer 2608009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Í samræmi við 49.grein samþykktar um stjórn Fjallabyggðar leggur staðgengill bæjarstjóra, Þórir Hákonarson, fram eftirfarandi tillögu í tengslum við 6.lið í fundargerð Ungmennaráðs Fjallabyggðar frá 10.september s.l.:

„Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir að sækja um uppbyggingu á mini-knattspyrnuvelli í svokallað FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ. Verkefnið hefur FIFA sett af stað til þess að byggja upp slíka velli til að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar knattspyrnuaðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega þar sem aðstöðu til knattspyrnuiðkunar er ábótavant.

Aðeins er gert ráð fyrir því að byggðir verði upp tveir slíkir vellir á Íslandi og samþykkir bæjarstjórn Fjallabyggðar að sækja um uppbyggingu á velli á Siglufirði þar sem fyrirhugað er að bæta verulega aðstöðu til knattspyrnuiðkunnar á Ólafsfirði með tilkomu knatthúss. Uppsetning á mini-knattspyrnuvelli myndi stórbæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í Fjallabyggð þar sem einungis er einn lítill sparkvöllur á Siglufirði. Um óverulegan kostnað er að ræða þar sem er gert ráð fyrir fjármögnun á undirlagi og yrði sá kostnaður lagður til í fjárhagsáætlun ársins 2027. Mikilvægt er að umsóknin sé gerð í samráði við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar.“

Til máls tóku við afgreiðslu fyrirliggjandi tillögu Helgi Jóhannsson og Tómas Atli Einarsson.

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.




7.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10. september 2026

Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð) sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.

Tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11 Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð frá Fjallabyggð, dagsett 4. september 2026. Reglurnar byggja á VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, einkum 19. til 24. gr., ásamt almennum ákvæðum IV. kafla um skyldur sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er skilgreind sem stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur í erfiðleikum til að mæta grunnþörfum.
    Sérstök áhersla er á hagsmuni barna, félagslega þátttöku þeirra og valdeflingu umsækjenda. Félagsleg ráðgjöf, samráð og einstaklingsbundið mat hafa það að markmiði að styrkja sjálfshjálp og þátttöku í samfélaginu.

    Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er ekki hugsuð til að mæta fullri framfærsluþörf einstaklinga og fjölskyldna til lengri tíma. Fjárhagsaðstoðin er fyrst og fremst tímabundin aðstoð þar til varanleg lausn finnst.
    Tillagan samræmir framfærsluviðmið, skilyrði og sérstakar stuðningsheimildir og leggur áherslu á tímabundna aðstoð með einstaklingsbundnum stuðningi. Tillaga að
    grunnfjárhæð í reglunum er 232.000 kr., sem er 14,8% hækkun á núverandi grunnfjárhæð.

    Tillagan er nálægt meðaltali annarra sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins.

    Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða reglugerð og fjárhæðir fjárhagsaðstoðar.
    Bókun fundar Liður 1 í fundargerðinni samþykktur með 7 atkvæðum og taka uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð gildi 1. janúar 2027.

8.Fljótagöng - Undirbúningur

Málsnúmer 2609020Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði tillögu um að hefja undirbúningsrannsóknir og framkvæmdir vegna Fljótaganga til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu.
Samþykkt
Samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026 - 2030

Málsnúmer 2605056Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram tillögur að eftirfarandi breytingum í trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar.

Pálína Pálsdóttir verður aðalmaður í Öldungaráði í stað Ólafs Þórs Ólafssonar sem verður varamaður

Í starfshóp um heilsueflandi samfélagi verði Ólafur Þór Ólafsson aðalmaður í stað Ólafs Baldursson og Brynhildur Bjarkadóttir verði varamaður í stað Ólafs Þór Ólafssonar.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum framlagðar tillögur að breytingum á trúnaðarstöðum samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar.

Fundi slitið - kl. 18:25.