Ungmennaráð Fjallabyggðar - 47. fundur - 10. september 2026

Málsnúmer 2608009F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 276. fundur - 17.09.2026

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Í samræmi við 49.grein samþykktar um stjórn Fjallabyggðar leggur staðgengill bæjarstjóra, Þórir Hákonarson, fram eftirfarandi tillögu í tengslum við 6.lið í fundargerð Ungmennaráðs Fjallabyggðar frá 10.september s.l.:

„Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir að sækja um uppbyggingu á mini-knattspyrnuvelli í svokallað FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ. Verkefnið hefur FIFA sett af stað til þess að byggja upp slíka velli til að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar knattspyrnuaðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega þar sem aðstöðu til knattspyrnuiðkunar er ábótavant.

Aðeins er gert ráð fyrir því að byggðir verði upp tveir slíkir vellir á Íslandi og samþykkir bæjarstjórn Fjallabyggðar að sækja um uppbyggingu á velli á Siglufirði þar sem fyrirhugað er að bæta verulega aðstöðu til knattspyrnuiðkunnar á Ólafsfirði með tilkomu knatthúss. Uppsetning á mini-knattspyrnuvelli myndi stórbæta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í Fjallabyggð þar sem einungis er einn lítill sparkvöllur á Siglufirði. Um óverulegan kostnað er að ræða þar sem er gert ráð fyrir fjármögnun á undirlagi og yrði sá kostnaður lagður til í fjárhagsáætlun ársins 2027. Mikilvægt er að umsóknin sé gerð í samráði við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar.“

Til máls tóku við afgreiðslu fyrirliggjandi tillögu Helgi Jóhannsson og Tómas Atli Einarsson.

Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.