Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10. september 2026

Málsnúmer 2609003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 276. fundur - 17.09.2026

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð) sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 1 samþykkt með 7 atkvæðum.

Tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11 Lögð er fram tillaga að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð frá Fjallabyggð, dagsett 4. september 2026. Reglurnar byggja á VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, einkum 19. til 24. gr., ásamt almennum ákvæðum IV. kafla um skyldur sveitarfélaga. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er skilgreind sem stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur í erfiðleikum til að mæta grunnþörfum.
    Sérstök áhersla er á hagsmuni barna, félagslega þátttöku þeirra og valdeflingu umsækjenda. Félagsleg ráðgjöf, samráð og einstaklingsbundið mat hafa það að markmiði að styrkja sjálfshjálp og þátttöku í samfélaginu.

    Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er ekki hugsuð til að mæta fullri framfærsluþörf einstaklinga og fjölskyldna til lengri tíma. Fjárhagsaðstoðin er fyrst og fremst tímabundin aðstoð þar til varanleg lausn finnst.
    Tillagan samræmir framfærsluviðmið, skilyrði og sérstakar stuðningsheimildir og leggur áherslu á tímabundna aðstoð með einstaklingsbundnum stuðningi. Tillaga að
    grunnfjárhæð í reglunum er 232.000 kr., sem er 14,8% hækkun á núverandi grunnfjárhæð.

    Tillagan er nálægt meðaltali annarra sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins.

    Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti uppfærða reglugerð og fjárhæðir fjárhagsaðstoðar.
    Bókun fundar Liður 1 í fundargerðinni samþykktur með 7 atkvæðum og taka uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð gildi 1. janúar 2027.