Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026

Málsnúmer 2608011F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 276. fundur - 17.09.2026

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 1 (Viðauki við fjárhagsáætlun 2026), lið 3 (Stækkun fráveitu - Primex) og lið 5 (Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar) sem bornir eru upp sérstaklega.

Guðrún Sif Guðbrandsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu á lið 3 í fundargerðinni, "Stækkun fráveitu - Primex".
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 3 og 5 samþykkt með 7 atkvæðum.

Liður 1 samþykktur með 7 atkvæðum
Liður 3 samþykktur með 6 atkvæðum
Liður 5 samþykktur með 7 atkvæðum
  • .2 2605003 Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Bæjarráð samþykkir framlagða tilfærslu milli liða að fjárhæð 10 mkr vegna tjaldsvæðisins í Ólafsfirði. Hann er til kominn vegna þess að kaupa þurfti allar þökur en til stóð að nýta gras þar sem fyrirhugað knatthús mun rísa. Einnig voru lagðar lagnir til að bregðast við vatnssöfnun í miklum rigningum og að hægt sé að dæla vatni í gegnum þær lagnir og einnig var bætt við rafmagnstenglum. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum
  • .3 2410007 Stækkun fráveitu - Primex
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Framkvæmdum við lagfæringu á útrás við Primex vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Stefnt er að því að fara í framkvæmdina sem fyrst á næsta ári og löngu tímabært að þessu máli verði lokað. Bókun fundar Samþykkt með 6 atkvæðum
  • .5 2201012 Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 930. fundur - 27. ágúst 2026 Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Landhelgisgæsluna og fagnar því að Freyja eigi áfram heimahöfn á Siglufirði sem er mikilvægt vegna markmiðs aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum meðal annars með uppbyggingu björgunarmiðstöðvar.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt eftirfarandi áskorun:

    "Í ljósi mikils álags á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar undanfarin misseri tekur bæjarráð Fjallabyggðar undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri og jákvæða umsögn Landhelgisgæslunnar um málið.

    Í umsögn Landhelgisgæslunnar kemur fram að föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri yrði bylting í björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu. Með henni væri unnt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla verulega viðbragð á norður- og austurmiðum og hálendinu. Landhelgisgæslan hafði fulla viðbragðsgetu aðeins 61% ársins 2025 og telur óskynsamlegt að flytja eina núverandi þyrlu til Akureyrar án þess að fjölga þyrlum og áhöfnum.

    Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja við næstu fjárlagagerð fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. Jafnframt verði hafið árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð að markmiði.

    Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu."
    Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum