Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 7 (Fljótagöng - Undirbúningur) sem er sér dagskrárliður á fundinum og lið 2 (Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal) sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
.2
2510036
Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal
Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10. september 2026
Bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi D-lista styður áframhaldandi rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal en gerir athugasemdir við undirbúning ákvörðunar um að hafna öllum umsóknum og fela sveitarfélaginu reksturinn.
Skrifleg lögfræðiráðgjöf, sem nú er meðal fundargagna, lá fyrir við fyrri afgreiðslu málsins en hafði ekki verið afhent fulltrúa D-lista. Honum var þá aðeins gerð munnleg grein fyrir henni. Í skriflega svarinu er mælt með að vísa umleitunum eins umsækjanda frá, en ekki lagt til að öllum umsóknum verði hafnað eða að sveitarfélagið taki reksturinn yfir.
Jafnframt er gerð athugasemd við frágang síðustu fundargerðar. Vegna sérstakra aðstæðna var fallist á skil bókana eftir fund. Bókun fulltrúa D-lista var send kl. 13:32 og fjórum mínútum síðar áskildi meirihlutinn sér rétt til svars. Viðbótarbókun meirihlutans barst rétt fyrir kl. 23 sama kvöld, um níu og hálfri klukkustund síðar, og innihélt ný efnisatriði og persónulegar ávirðingar.
Beiðni fulltrúa D-lista um svigrúm til viðbragða var hafnað. Hann dró eigin viðbótarbókun síðan til baka þegar ljóst var að hún yrði ekki tekin inn, til að ljúka samskiptunum og færa umræðuna á næsta fund. Það fól ekki í sér samþykki við fyrri synjun eða mismunandi meðferð bókana.
Fulltrúi D-lista hafnar ásökunum um lýðskrum og pólitískar smákeilur. Gagnrýni hans snýr að upplýstri ákvarðanatöku og ábyrgri meðferð fjármuna. Óskað er eftir formlegri, rökstuddri afgreiðslu á fyrirliggjandi leiðréttingarkröfu og skýringu á því hvaða fyrirkomulag gilti um skil bókana og lokun fundargerðar."
Bæjarfulltrúar H og S-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarráðsfulltrúa D-listans bauðst, eftir að honum var hafnað um seinni bókun á síðasta fundi, að taka málið upp á næsta fundi bæjarráðs sem hann gerir hér og þar með hefur hann haft tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum til skila. Samkomulag var á síðast bæjarráðsfundi um að bókanir yrðu lagðar fram eftir fund og komu báðir aðilar sjónarmiðum sínum á framfæri. Þar sem öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal var hafnað, þá mun ekki reyna á hæfi aðila í þessu máli."
Bókun fundar
Liður 2 samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 7, sem er sér dagskrárliður á fundinum, og lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.
Liður 2 í fundargerðinni samþykktur með 4 atkvæðum fulltrúa H- og S- lista gegn 3 atkvæðum fulltrúa D- lista.