Bæjarráð Fjallabyggðar

530. fundur 21. nóvember 2017 kl. 12:00 - 13:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Fjárhagsáætlun 2018

Málsnúmer 1711029Vakta málsnúmer

Farið var yfir stöðu gerðar fjárhagsáætlunar 2018. Nefndir skila bæjarráði niðurstöðu 23. nóvember nk.
Næsti fundur bæjarráðs verður 24.nóvember nk.

2.Jól og áramót 2017/2018

Málsnúmer 1710086Vakta málsnúmer

Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum frá deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

3.Ísland ljóstengt - Upplýsingar vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga

Málsnúmer 1609042Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða A hluta umsóknarferlis fyrir verkefnið Ísland ljóstengt á árinu 2018. Umsókn Fjallabyggðar var samþykkt. Bæjarráð samþykkti þann 12. september sl. að gert yrði ráð fyrir kostnaði Fjallabyggðar að upphæð 3.500.000 kr. á fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Alls verða 10 lögheimili í dreifbýli Fjallabyggðar tengd við ljósnet/ljósleiðara og þannig verða öll lögheimili í sveitarfélaginu tengd við ljósnet/ljósleiðara.

4.Þjónustusamningur - Síminn - Fjallabyggð

Málsnúmer 1711052Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála leiti möguleika á framlengingu á samningi um síma og internetþjónustu við Símann með hagstæðari verð í huga.

5.Málefni Hverfisgötu 17 Siglufirði

Málsnúmer 1506013Vakta málsnúmer

Bæjarráð óskar eftir að niðurstöður verðkönnunar á niðurrifi hússins liggi fyrir á fundi bæjarráðs í næstu viku.

6.Samningur um þjónustu Securitas

Málsnúmer 1711020Vakta málsnúmer

Þjónustusamningur Fjallabyggðar við Securitas um fjargæslu og almenna þjónustu rann út 31.október 2017.
Bæjarráð felur deilarstjóra stjórnsýslu og fjármála að afla frekari upplýsinga.

7.Upplýsingagjöf sveitarstjórna við úgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 1711022Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfisstofnunar er varðar upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, dags. 6. nóvember 2017. Vakin er athygli á breytingu á lögum nr. 55/2003 þar sem málsgrein um upplýsingaskyldu sveitarfélaga til Umhverfisstofnunar er felld inn.

8.Aðalfundur Eyþings - 2017

Málsnúmer 1710103Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun aðalfundar Eyþings sem haldinn var í Fjallabyggð dagana 10.-11. nóvember sl.

9.Hjólahreystibraut - margnota leiktæki og æfingatæki

Málsnúmer 1711041Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi um LexGames þar sem óskað er eftir samstarfi við Fjallabyggð um uppsetningu á hjólahreystibraut. Kostnaður við uppsetningu brautarinnar er 3-7 milljónir og er háð stærð hennar.

Bæjarráð samþykkir að verða ekki við beiðni LexGames um uppsetningu slíkrar brautar að svo stöddu.

10.Ósk um niðurfellingu eða lækkun leigugjalds

Málsnúmer 1711042Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Hönnu Maríu Hjálmtýsdóttur, f.h. foreldra barna fædd 2014 og 2015, þar sem óskað er eftir niðurfellingu eða lækkun á leigugjaldi í íþróttasal í húsnæði Grunnskólans við Norðurgötu. Fyrirhugað er nýta salinn til íþróttaiðkunar í eina klukkustund á laugardögum og eru börn fædd 2014 og 2015 velkomin ásamt foreldrum.

Bæjarráð samþykkir að veita hópnum frítíma til reynslu til loka apríl 2018 og þá mun fyrirkomulagið verða endurskoðað.

11.Samningur um refaveiðar 2017-2019

Málsnúmer 1711048Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar undirritaður endurskoðaður samningur milli Fjallabyggðar og Umhverfisstofnunar um refaveiðar á árunum 2017-2019.
Samningurinn tók gildi 1. janúar 2017 en skal endurskoðaður ár hvert m.t.t. samningsupphæðar fyrir árin 2018 og 2019.

12.Afnotastyrkur vegna heimaleiks í íslandsmóti í blaki

Málsnúmer 1711063Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Blakfélagi Fjallabyggðar um ókeypis afnot af íþróttahúsi á Siglufirði, sunnudaginn 26.nóvember nk. vegna Íslandsmóts í blaki.
Bæjarráð samþykkir beiðni Blakfélagsins.

13.Umsókn um tækifærisleyfi

Málsnúmer 1711054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dags. 17.11.2017, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Hallarinnar veitingahúss, Ólafsfirði kt. 520606-1490 um tímabundið tækifærisleyfi annan í jólum, þriðjudaginn 26. desember nk. frá kl. 01:00 til miðvikudagsins 27. desember nk. til kl. 05:00.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti.





14.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Fundargerð frá fundi ungmennaráðs þann 14. nóvember 2017 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:15.