Ósk um niðurfellingu eða lækkun leigugjalds

Málsnúmer 1711042

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 530. fundur - 21.11.2017

Tekið fyrir erindi Hönnu Maríu Hjálmtýsdóttur, f.h. foreldra barna fædd 2014 og 2015, þar sem óskað er eftir niðurfellingu eða lækkun á leigugjaldi í íþróttasal í húsnæði Grunnskólans við Norðurgötu. Fyrirhugað er nýta salinn til íþróttaiðkunar í eina klukkustund á laugardögum og eru börn fædd 2014 og 2015 velkomin ásamt foreldrum.

Bæjarráð samþykkir að veita hópnum frítíma til reynslu til loka apríl 2018 og þá mun fyrirkomulagið verða endurskoðað.