Bæjarráð Fjallabyggðar

519. fundur 19. september 2017 kl. 12:00 - 12:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Valur Þór Hilmarsson varamaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Viðgerð á fráveituröri Primex

Málsnúmer 1610086Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar vegna erindis Primex ehf sem tekið var fyrir á fundi bæjarráðs þann 5. september sl.
Í erindi Primex eru gerðar tillögur um sameiginlegar úrbætur Fjallabyggðar og Primex vegna útrása beggja aðila út í sjó. Í minnisblaði bæjarstjóra og deildarstjóra er lagt til að útrás við Primex verði lengd til austurs á dýpra vatn svo minnka megi mengun í Siglufjarðarhöfn. Enn fremur er lagt til að Primex setji upp hreinsibúnað í verksmiðjunni til að sía frá litaðan lífmassa.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að ræða tillögurnar við forsvarsmenn Primex.

2.Kaup á vinnubíl þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar

Málsnúmer 1709054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir tilboð frá Systrafélagi og Sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju f.h. Kirkjugarða Siglufjarðar, í aflagðan vinnubíl þjónustumiðstöðvarinnar. Hyggjast Kirkjugarðar Siglufjarðar breyta bifreiðinni í líkbíl. Tilboðið hljóðar upp á 700.000 kr., sem greiðist í tvennu lagi.

Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

3.Starf forstöðumanns Bóka- og héraðsskjalasafns

Málsnúmer 1708035Vakta málsnúmer

Steinunn María Sveinsdóttir vék undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

4.Ágangur búfjár í landi Brimnes í Ólafsfirði

Málsnúmer 1709019Vakta málsnúmer

Jón Valgeir Baldursson vék undir þessum lið.

Lögð fram umsögn deildarstjóra tæknideildar vegna erindis um ágang búfjár í landi Brimness í Ólafsfirði, sem tekið var fyrir á fundi bæjarráðs þann 12. september sl.
Var þess krafist að Fjallabyggð brygðist við ágangi búfjár og að þéttbýli Fjallabyggðar yrði girt af.

Í umsögn deildarstjóra kemur fram að þéttbýlið í Ólafsfirði er girt af og nær girðingin að Brimnesá til norðurs. Í sumar hafi búfénaður sótt yfir ána og þannig komist inn í þéttbýlið. Til að koma í veg fyrir þennan ágang þarf að framlengja girðinguna yfir Brimnesá og norður fyrir Múlagöng. Áætlaður kostnaður við girðinguna er 2-2,5 milljón kr.

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að ræða við Vegagerðina um mögulega kostnaðarþátttöku og samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

5.Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Fjallabyggð 2017- 2020

Málsnúmer 1706014Vakta málsnúmer

Opnun tilboða í snjómokstur og hálkuvarnir í Fjallabyggð fór fram 4. september sl. Eftirfarandi verktakar buðu í snjómokstur og hálkuvarnir í Ólafsfirði: Árni Helgason ehf., Magnús Þorgeirsson ehf. og Smári ehf.. Í snjómokstur og hálkuvarnir á Siglufirði barst eitt tilboð frá Bás ehf.

Í umsögn deildarstjóra tæknideildar er lagt til að samið verði við verktaka sem hér segir:

Bás ehf. á Siglufirði.
Árni Helgason ehf. - stórar vinnuvélar í Ólafsfirði.
Smári ehf. - minni vélar í fyrsta forgangi í Ólafsfirði.
Magnus Þorgeirsson ehf. - minni vélar í öðrum forgangi í Ólafsfirði.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga samkvæmt tillögu deildarstjóra.

6.Uppbygging innviða fyrir rafbíla á Norðurlandi

Málsnúmer 1609026Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn deildarstjóra tæknideildar vegna tilboða í hraðhleðslustöð í Fjallabyggð. Vistorka ehf. sótti um styrk til Orkusjóðs í samstarfi við 11 sveitarfélög á Norðurlandi og fékkst styrkur til uppsetningar hraðhleðslustöðva. Sveitarfélögum var í sjálfsvald sett að semja við Orku Náttúrunnar, Ísorku og Íslenska gámafélagið, eða Hlöðu.
Í umsögn deildarstjóra tæknideildar er lagt til að taka tilboði Ísorku og Íslenska gámafélagsins, þar sem þeir bjóðast til þess að sjá um uppsetningu og rekstur stöðvarinnar.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að ræða við Ísorku og Íslenska gámafélagið um mögulega staðsetningu hraðhleðslustöðvar í sveitarfélaginu.

7.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017/2018

Málsnúmer 1709045Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dags. 11. september 2017, þar sem ráðuneytið gefur sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 á grundvelli 10 gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til 15. október nk..

Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um fyrir Fjallabyggð.

8.Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018 og fjárhagsáætlun til þriggja ára

Málsnúmer 1709049Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. september 2017, um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2018 og fjárhagsáætlun til þriggja ára.

9.Svæðislokanir fyrir dragnót

Málsnúmer 1709053Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dags. 12. september 2017, til Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga vegna vinnu starfshóps um heildarendurskoðun á regluverki er varðar notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndarsvæði á Íslandsmiðum. Starfshópurinn hefur skilað minnisblaði um reglur sem gilda um dragnótaveiðar og og er m.a. fjallað um tímabundnar svæðalokanir fyrir dragnót sem settar voru á árið 2010. Aðildarsveitarfélögum er gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri við ráðuneytið til og með 26. september n.k.

10.Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga - Rebel sf

Málsnúmer 1709051Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dags. 14. september 2017, er varðar umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga fyrir Rebel sf. kt. 620285-0219, Suðurgötu 10, 580 Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir rekstrarleyfið fyrir sitt leyti.

Fundi slitið - kl. 12:45.