Kaup á vinnubíl þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar

Málsnúmer 1709054

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 519. fundur - 19.09.2017

Tekið fyrir tilboð frá Systrafélagi og Sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju f.h. Kirkjugarða Siglufjarðar, í aflagðan vinnubíl þjónustumiðstöðvarinnar. Hyggjast Kirkjugarðar Siglufjarðar breyta bifreiðinni í líkbíl. Tilboðið hljóðar upp á 700.000 kr., sem greiðist í tvennu lagi.

Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.