Bæjarráð Fjallabyggðar

443. fundur 03. maí 2016 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson varamaður, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Viðbygging við Menntaskólann á Tröllaskaga

Málsnúmer 1601094Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að hönnunarsamningi við AVH ehf. v. viðbyggingar við Menntaskólann á Tröllaskaga.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur bæjarstjóra að undirrita.

2.Til umsagnar - frá nefndasviði Alþingis, 638. mál

Málsnúmer 1604070Vakta málsnúmer

Á 442. fundi bæjarráðs, 26. apríl 2016, var til umfjöllunar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638. mál.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundi bæjarráðs.

Umsögn send nefndarsviði lögð fram.

Þau atriði sem helst bera að nefna í umsögn varða endurbyggingu Bæjarbryggju á Siglufirði, Skarðsveg í Skarðsdal og gatnamót Snorragötu, Gránugötu og Suðurgötu, Siglufirði.

3.Jafnréttisáætlun Fjallabyggðar 2016-2020

Málsnúmer 1512014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar yfirferð Jafnréttisstofu á jafnréttisáætlun Fjallabyggðar.

Það er mat Jafnréttisstofu að áætlunin uppfylli lágmarkskröfur sem gerðar eru skv. ákvæðum jafnréttislaga nr. 10/2008.

4.Viðmiðunarreglur um launuð og launalaus leyfi starfsmanna

Málsnúmer 1604073Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað fræðslu- frístunda- og menningarfulltrúa, frá 22. apríl 2016, ásamt drögum að viðmiðunarreglum um launuð og launalaus leyfi starfsmanna.

Bæjarráð samþykkir að vísa drögum að reglum til afgreiðslu þar næsta fundar.

5.Rekstraryfirlit mars 2016

Málsnúmer 1604077Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit mars 2016.

Rekstrarniðurstaða Fjallabyggðar fyrir janúar til mars, 2016, er 3,0 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, 24,5 millj. í tekjur umfram gjöld, í stað 21,5 millj.
Tekjur eru 0,5 millj. hærri en áætlun, gjöld 4,3 millj. lægri og fjármagnsliðir 1,8 millj. hærri.

6.Trúnaðarmál - Starfsmannamál

Málsnúmer 1603090Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Helga Helgadóttir af fundi og í hennar stað kom S. Guðrún Hauksdóttir.

Niðurstaða bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

7.Fráveita Ólafsfirði 2016

Málsnúmer 1604043Vakta málsnúmer

Kl. 13:00 í dag 3. maí 2016, voru opnuð tilboð í verkið "Ólafsfjörður fráveita 2016. Yfirfalls- og dælubrunnur við Pálsbergsgötu. Útrás og yfirfallsbrunnur við Námuveg".

Tilboð bárust frá:
Bás ehf. Siglufirði kr. 37.414.474,- sem er 132% af kostnaðaráætlun (28.433.800) og
Smári ehf. Ólafsfirði kr. 47.042.556,- sem er 165% af kostnaðaráætlun.

Bæjarráð hafnar framkomnum tilboðum.

8.Athugasemd við úthlutun leikskólapláss á Leikskálum

Málsnúmer 1511037Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristinn J. Reimarsson.

Tekið til umfjöllunar erindi Bryndísar Þorsteinsdóttur, dagsett 29. apríl 2016 um úthlutun leikskólapláss á leikskólanum Leikskálum.

Einnig lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, dagsett 29. apríl 2016.

Bæjarráð óskar eftir því að leikskólastjóri mæti á næsta fund bæjarráðs og leggi fram umsögn.

9.Beiðni um lagfæringu á götubotnlanga að Þormóðsgötu 30 Siglufirði

Málsnúmer 1604084Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá Ívari Bragasyni, eiganda að Þormóðsgötu 30 Siglufirði, dagsett 25. apríl 2016.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar og bæjarstjóra.

10.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - frida chocolate

Málsnúmer 1604074Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 25. apríl 2016, er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir Yummi Yummi kt. 601115-2390 til sölu veitinga að Túngötu 40a, Siglufirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

11.Endurminningar/afmælisrit séra Vigfúsar Þórs Árnasonar

Málsnúmer 1604085Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirspurn vegna söfnunar áskrifenda að endurminningum og í senn afmælisriti séra Vigfúsar Þórs Árnasonar sem var prestur á Siglufirði og bæjarfulltrúi.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og forstöðumanni Bókasafns Fjallabyggðar kaup á bókum.

12.Málefni jarðganga á Tröllaskaga

Málsnúmer 1604029Vakta málsnúmer

Á 441. fundi bæjarráðs, 19. apríl 2016, var lagt fram til kynningar bréf slökkviliðsstjóra Fjallabyggðar til Vegagerðar, um málefni jarðganga á Tröllaskaga, dagsett 11. apríl 2016.

Lagt fram svarbréf Vegagerðarinnar, dagsett, 20. apríl 2016.

Bæjarráð undrast svör Vegagerðarinnar og felur slökkviliðsstjóra að leita eftir skýrari svörum.

13.Greið leið - aðalfundur 2016

Málsnúmer 1605003Vakta málsnúmer

Boðað er til aðalfundar Greiðrar leiðar ehf. 10. maí 2016 á Akureyri.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að sækja fundinn f.h. Fjallabyggðar, eigi hann þess kost.

14.Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2016

Málsnúmer 1605008Vakta málsnúmer

Boðað er til aðalfundar Markaðsstofu Norðurlands, 10. maí 2016 á Akureyri.

Lagt fram.

15.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirfarandi fundargerðir:

6. fundur starfshóps um málefni Menntaskólans á Tröllaskaga, 27. apríl 2016.

98. fundur félagsmálanefndar, 29. apríl 2016.

16.Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra - 2016

Málsnúmer 1601004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð HNV frá 28. apríl 2016.

Fundi slitið.