Bæjarráð Fjallabyggðar

428. fundur 19. janúar 2016 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varamaður, D lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Líkamsrækt, Siglufirði

Málsnúmer 1511002Vakta málsnúmer

Í framhaldi af ósk bæjarráðs frá 17. nóvember, var á 423. fundi bæjarráðs, 3. desember s.l. lagður fram listi yfir það sem talið er að bráðvanti að endurnýja í tækjakosti í líkamsrækt.
Bæjarráð fól íþrótta- og tómstundafulltrúa að kanna með möguleika á tækjaleigu.

Á fund bæjarráðs kom íþrótta- og tómstundafulltrúi, Haukur Sigurðsson og kynnti niðurstöðu könnunar.

Bæjarráð óskar eftir að íþrótta- og tómstundafulltrúi kanni með verð í tækjakaup frá fleiri aðilum en fram hafa komið.

2.Launayfirlit tímabils 2015

Málsnúmer 1504016Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir janúar til desember 2015.

Niðurstaðan fyrir heildina er 1.041,1 m.kr. sem er 99,1% af áætlun tímabilsins sem var 1.050,3 m.kr.
Upphafsáætlun ársins var 1.013,1 m. kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 27,9 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 37,2 m.kr.
Nettóniðurstaða er því 9,3 m.kr. undir áætlun tímabilsins.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lokið við gerð kjarasamninga við meirihluta stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga.
Ósamið er við nokkur stéttarfélög m.a. BHM félög, slökkviliðsmenn, sjúkraliða og tónskólakennara.

Samhliða launayfirliti tímabils, voru lagðar fram tölulegar upplýsingar launadeildar fyrir 2015.

Þar kemur m.a. fram að :
Útgefnir launamiðar eru 373
Konur

220

59%
Karlar

153

41%

Aldursskipting starfsmanna 2015
18 ára og yngri, 40 11%
19-30 ára, 89 24%
31-40 ára, 53 14%
41-60 ára, 155 42%
61 ára og eldri, 56 15%






Heildarlaun starfsmanna 2015
lægri en 2,4 millj., 234 63%
frá 2,4 millj. til 4,8 millj., 68 18%
yfir 4,8 millj., 71 19%

3.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 1601028Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð erindisbréf nefnda í tengslum við breytt skipurit Fjallabyggðar frá 1. janúar 2016.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu með áorðnum breytingum til umræðu í bæjarstjórn.

4.Aðalfundur Samorku 19.febrúar 2016

Málsnúmer 1601057Vakta málsnúmer

21. aðalfundur Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja verður haldinn 19. febrúar 2016 kl. 10:30 í Reykjavík. Ársfundur samtakanna verður haldinn sama dag og hefst kl. 13:00.

Lagt fram til kynningar.

5.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstraleyfi - Hávegur 5 Siglufirði

Málsnúmer 1601023Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 6. janúar 2016, er varðar umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Háveg 5, Siglufirði, til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

6.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Hlíðarvegur 1 Siglufirði

Málsnúmer 1601022Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 6. janúar 2016, er varðar umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hlíðarveg 1, Siglufirði, til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

7.Beiðni um umsögn vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi - Tröllakot

Málsnúmer 1601052Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 6. janúar 2016, er varðar umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis til sölu gistingar að Tröllakoti, 625 Ólafsfirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

8.Bikarmót í alpagreinum 12-13 ára og 14-15 ára - 5.-7. febrúar 2016

Málsnúmer 1601053Vakta málsnúmer

Helgina 5.-7. febrúar verður haldið bikarmót í alpagreinum 12-13 ára og 14-15 ára á skíðasvæðinu í Tindaöxl í Ólafsfirði og í Böggvisstaðafjalli á Dalvík. Um 140 keppendur eru skráðir til leiks.

Á sunnudeginum verður svigmótið í Tindaöxlinni í Ólafsfirði.
Í erindi mótanefndar Skíðafélags Ólafsfjarðar, dagsett 15. janúar 2016 er lögð fram beiðni um að bæjarfélagið bæti salernisaðstöðu á skíðasvæðinu um mótshelgina.

Bæjarráð samþykkir erindið.

Færist af fjárhagslið 06810-9291 sem styrkur til Skíðafélags Ólafsfjarðar vegna salernisaðstöðu kr. 32.000.

9.Fasteignagjöld 2015 - athugasemdir

Málsnúmer 1502054Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Þóris Kr. Þórissonar dagsett 4. janúar 2016, þar sem komið er á framfæri athugasemdum við hækkun álagningar fasteignagjalda á fasteignina að Hlíðarvegi 1 Siglufirði.

Bæjarráð sér sér ekki fært að taka upp tímabilsálagningu fasteignagjalda vegna gististarfsemi á þessu ári.

10.Trúnaðarmál - fasteignagjöld

Málsnúmer 1601038Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

11.Landnemaskólinn í Fjallabyggð

Málsnúmer 1601045Vakta málsnúmer

Í vetur er starfræktur Landnemaskóli í Fjallabyggð, fyrir innflytjendur sem hafa nokkurn grunn í íslensku og er markmið skólans að auðvelda nemendum aðlögun að íslenskum vinnumarkaði og samfélagi.

Skólinn er á vegum Símey í samstarfi við Fjallabyggð. Nemendur Landnemaskólans nú í vetur eru níu talsins, fimm íbúar á Siglufirði og fjórir frá Ólafsfirði.

Kennslan í Landnemaskólanum samanstendur af íslensku, nytsamri samfélagsfræði, upplýsingatækni, sjálfsstyrkingu og gerð færnimöppu og fer fram í húsnæði Fjallabyggðar. Samfélagsfræðikennslan er hugsuð þannig að nemendur fái góða innsýn í stofnanir og fyrirtæki í heimabyggð með heimsóknum og kynningu á því helsta sem er í boði fyrir íbúana.

Í erindi verkefnisstjóra, dagsett 11. janúar 2016, er kannað hvort Fjallabyggð sjái sér fært að bjóða nemendum í heimsókn og kynna fyrir þjónustuna sem bæjarfélagið hefur upp á að bjóða.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu deildarstjóra fræðslu- frístunda og menningarmála.

12.Skákdagurinn 2016 - sveitarfélög hvött til að taka þátt

Málsnúmer 1601049Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Skáksambands Íslands um Skákdag Íslands sem haldinn verður um land allt 26. janúar nk. Kjörorð skákdagins og einkunnarorð skákhreyfingarinnar er: Við erum ein fjölskylda.
Með þeim er undirstrikað að allir geta teflt, óháð kyni, aldri eða líkamsburðum.
Sveitarfélög eru hvött til að skipuleggja skákviðburði þennan dag.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra úrvinnslu erindis.

Fundi slitið.