Bæjarráð Fjallabyggðar

419. fundur 17. nóvember 2015 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Fjárhagsáætlun 2016 og 2017-2019

Málsnúmer 1505055Vakta málsnúmer

123. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, 11 nóvember 2015, samþykkti að vísa fjárhagsáætlun 2016 og 2017 - 2019, til umfjöllunar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

a) Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna þjóðhagsspár í nóvember 2015.

Bæjarráð samþykkir að taka mið af breyttri spá við áætlunargerð.

b) Ofanflóðasjóðslán
Vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir samþykkir bæjarráð að gera ráð fyrir lántökum þeirra vegna við áætlunargerð.

c) Breyting á launaáætlun vegna launatengdra gjalda, námsmats- og kjarabreytinga.
Bæjarráð samþykkir að taka breyttar forsendur inn í áætlunargerð.

d) Móttaka gesta
Bæjarráð samþykkir breytingu á áætlun vegna móttöku gesta 2016 og 2018.

e) Erindi hundafélagsins Trölla.
Búið er að samþykkja úthlutun á hundasvæði við sunnanverðan endann á gamla flugvellinum við Mummavatnið í Ólafsfirði.
Bæjarráð gerir ekki ráð fyrir fjármagni á fjárhagsáætlun 2016 fyrir girðingu á hundasvæði.

f) Skógræktarfélag
Bæjarráð samþykkir rekstrarstyrk að upphæð 200 þúsund kr.

g) FM-Trölli.is samstarf
Bæjarráð samþykkir samstarfsstyrk að upphæð 50 þúsund kr.

h) Jassklúbbur Ólafsfjarðar - viðskiptaskuld
Bæjarráð hafnar niðurfellingu viðskiptaskuldar.

i) Rökstólar - samvinnumiðstöð
Bæjarráð telur sig ekki geta styrkt þetta verkefni fjárhagslega.

j) Veraldarvinir
Bæjarráð samþykkir samstarf við Veraldavini að upphæð 610 þúsund kr.

k) Dagvist aldraðra
Bæjarráð samþykkir framlag til dagvistar aldraðra í Hornbrekku að upphæð 2 millj. kr.

l) Opnunartími sundlaugar á Siglufirði á sunnudögum yfir vetrartímann.
Bæjarráð samþykkir vetraropnun sundlaugar á Siglufirði á sunnudögum.

m) Samstarf við HSN - heimahjúkrun
Bæjarráð samþykkir að veita einni milljón kr. til samstarfs við Heilbrigðisstofnun Norðurlands um samþættingu heimahjúkrunar.

Bæjarráð vísar ofangreindum breytingum til áætlunargerðar.

2.Fundargerð 9. fundar Ungmennaráðs frá 4. nóvember 2015

Málsnúmer 1511042Vakta málsnúmer

123. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, 11. nóvember 2015, vísaði fundargerð 9. fundar ungmennaráðs frá 4. nóvember 2015, til bæjarráðs.

Eftirfarandi dagskrárliðir fundargerðar voru teknir til umræðu:


1511003 - Framtíðarhúsnæði Neon
Varðandi framtíðarhúsnæði Neons, hvetur bæjarráð ungmennaráð til að gera könnun á meðal notenda.


1410049 - Kvikmyndasýningar í Tjarnarborg
Varðandi kvikmyndasýningar, þá gerir bæjarráð ekki ráð fyrir kvikmyndasýningum í Tjarnarborg í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.

1511002 - Líkamsrækt, Siglufirði
Bæjarráð óskar eftir úttekt íþrótta- og tómstundafulltrúa á tækjakosti líkamsræktarstöðvanna í Fjallabyggð.

3.Staðgreiðsla tímabils 2015

Málsnúmer 1503039Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit staðgreiðslu útsvars fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. október 2015.

Bókfærð upphæð er 3,7% hærri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, 790,4 millj. en áætlun gerði ráð fyrir 762,6 millj.

4.Síldarævintýri 2015

Málsnúmer 1504025Vakta málsnúmer

123. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, 11. nóvember 2015, vísaði þessu máli til bæjarráðs.

Tekin til umræðu skipulag og staða hátíðarhalda í Fjallabyggð.

Bæjarráð leggur til að haldinn verði fundur markaðs- og menningarnefndar með forsvarsmönnum hátíða sem haldnar eru í Fjallabyggð.
Bæjarráð felur markaðs- og menningarfulltrúa skipulag fundarins.

5.Veraldarvinir - ósk um samstarf á árinu 2016

Málsnúmer 1510010Vakta málsnúmer

Á 418. fundi bæjarráðs, 9. nóvember 2015, var óskað eftir kostnaðaráætlun frá íþrótta- og tómstundafulltrúa, fyrir næsta fund bæjarráðs við hugsanlega móttöku Veraldarvina.

Kostnaðaráætlun lögð fram.

Bæjarráð samþykkir að taka upp samstarf við Veraldarvini 2016 þar sem lagaðar og stikaðar yrðu gönguleiðir og fjörur í bæjarfélaginu hreinsaðar.

Bæjarráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að skipuleggja verkefnið í samstarfi við Veraldarvini, verkstjóra Þjónustumiðstöðvar og deildarstjóra tæknideildar.

6.I AM PRO SNOW - Loftslagsmál á köldum svæðum

Málsnúmer 1511033Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Lindsey Halvorson frá 3. nóvember sl., varðandi verkefnið "I AM PRO SNOW".

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita áskorun vegna verkefnisins.

7.Kvikmyndasýningar í Tjarnarborg

Málsnúmer 1410049Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áskorun Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda á bæjarstjórn Fjallabyggðar, um að styðja fjárhagslega við að hægt verði að reka bíóhús og hefja kvikmyndasýningar að nýju í Fjallabyggð.

8.Ráðstefna um jarðskjálfta á Norðurlandi

Málsnúmer 1511026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi um fyrirhugaða ráðstefnu 31. maí til 3. júní 2016.

9.Stuðningur við Snorraverkefnið 2016

Málsnúmer 1511027Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar styrkbeiðni frá verkefnisstjóra Snorraverkefnisins 2016, dagsett 30. október 2015.
Bæjarráð sér sér ekki fært að styrkja verkefnið.

10.Bréf Bryndísar Þorsteinsdóttur dags. 13. nóvember 2015

Málsnúmer 1511037Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti leikskólastjóri Olga Gísladóttir.

Tekið fyrir erindi Bryndísar Þorsteinsdóttur um að kannað verði hvort hægt sé að koma börnum sem fædd eru í apríl og maí 2015 fyrr inn á leikskólann Leikskála, en í ágúst 2016.

Því miður leyfa aðstæður ekki innritun barna að vori. Leikskólinn er fullsetinn og ákveðnar eru framkvæmdir við leikskólann til að mæta aukinni eftirspurn.

Fundi slitið.