Bæjarráð Fjallabyggðar

338. fundur 29. apríl 2014 kl. 16:00 - 19:00 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Ingvar Erlingsson varamaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri

1.Áætlun til þriggja ára um refaveiðar

Málsnúmer 1404027Vakta málsnúmer

Þann 11. apríl s.l. sendi Umhverfisstofnun bréf á öll sveitarfélög, ásamt drögum að áætlun til þriggja ára, um refaveiðar.
Ætlunin var að ganga frá samningi við bæjarfélög um endurgreiðslur á þriðjungi kostnaðar.

Í bréfi frá 14. apríl eru lögð fram drög að "Áætlun til þriggja ára um refaveiðar."
Óskað er eftir umsögn og athugasemdum fyrir 30. apríl 2014.

 

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að halda utan um málið og ganga frá samningi við ráðuneyti og veiðimenn.

2.Bókasafn Fjallabyggðar, Ólafsfirði - endurbætur

Málsnúmer 1401133Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir vegna breytinga á húsnæði bókasafnsins í Ólafsfirði og framtíðar hugmyndir um lagfæringar á bóka- og héraðsskjalasafni á Siglufirði.

Lagt fram til kynningar.

3.Sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014

Málsnúmer 1402011Vakta málsnúmer

Kosningar til sveitarstjórna mun fara fram laugardaginn 31. maí 2014.

Bæjarráð leggur til viðbæjarstjórna neðanritaða tillögu til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.

 

Tillaga vegna kosninga til sveitarstjórnar laugardaginn 31. maí 2014:
a) Umboð til bæjarráðs Fjallabyggðar til að staðfesta kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 31. maí 2014 og fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullnaðarumboð til að ganga frá kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 31. maí 2014. Jafnframt veitir bæjarstjórn bæjarráði fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir sem kunna að berast vegna framlagðrar kjörskrár sbr. ákv. 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5. frá 6. mars 1998 með síðari breytingum.

b) Ákvörðun bæjarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna kosninga til sveitarstjórnar 31. maí 2014, sbr. 13. gr. IV. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5 frá 6. mars 1998 og sbr. 44 gr. IX. kafla sömu laga um kosningar til sveitarstjórna.
Sbr. 13. og 44. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5 frá 6. mars 1998 með síðari breytingum samþykkir bæjarstjórn tvær kjördeildir í Fjallabyggð og verða þær annars vegar í ráðhúsinu Siglufirði og hins vegar í Menntaskólanum á Tröllaskaga, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar.
Samþykkt samhljóða.

4.Til umsagnar - Frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og ríkisendurskoðun, 488. mál

Málsnúmer 1404031Vakta málsnúmer

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og ríkisendurskoðun, sjá 488. mál.

Lagt fram til kynningar.

5.Átaksverkefni - störf í sumar hjá ríki og sveitarfélögum

Málsnúmer 1404039Vakta málsnúmer

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu Vinnumálastofnunar að verja um 150 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til átaks sem tryggja mun 390 námsmönnum, 18 ára og eldri, störf í sumar hjá ríki og sveitarfélögum.

Bæjarráð samþykkir að sækja um styrk frá Vinnumálastofnun til að tryggja sem flest störf fyrir ungt fólk í Fjallabyggð í sumar.

6.Reitir 2014

Málsnúmer 1404049Vakta málsnúmer

Fyrir hönd Reita óskar Arnar Ómarsson eftir aðkomu bæjarfélagsins að verkefnum sumarsins og nefnir neðanritað.

1. Fjárstyrk að upphæð kr. 200.000.-.

2. Gistipláss í gamla gagnfærðaskólanum fyrir 10 - 15 manns.

3. Gott áfamhaldandi samstarf við bæjarfélagið.

Bæjarráð samþykkir afnot af húsnæði skólans frá 1. júlí til 15. júlí 2014.

Jafnframt samþykkir bæjarráð aðstoð við Reiti eins og verið hefur og felur deildarstjóra tæknideildar að aðstoða Reiti.

Bæjarráð leggur hins vegar áherslu á að styrkumsóknir til verkefna verði að berast á réttum tíma. Fjárstyrk er því hafnað en bæjarráð leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf.

Samþykkt samhljóða.

7.Til umsagnar - Frumvarp til laga um örnefni, 481. mál

Málsnúmer 1404026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar, frumvarp til laga um örnefni, þingskjal 832 - 481. mál.

8.Samanburður - lykiltölur 2006 til 2013

Málsnúmer 1404038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar, samanburður á kennitölum Fjallabyggðar frá árinu 2006 til síðustu áramóta.

9.Bréf Garðyrkjufélags Íslands frá 22. apríl 2014

Málsnúmer 1404041Vakta málsnúmer

Aðalfundur Garðyrkjufélags Íslands haldinn 8. apríl 2014 hvetur sveitarfélög til að vinna að stefnumörkun um ræktun skjólbelta, yndis- og nytjagróðurs í þéttbýli og skapa vistvænna umhverfi.

Lagt fram til kynningar.

10.Staðfesting á útsvarsprósentu við álagningu 2014 á tekjur 2013

Málsnúmer 1404032Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf til bæjarstjóra er varðar staðfestingu á útsvarsprósentu við álagningu 2014 á tekjur ársins 2013.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að staðfesta að Fjallabyggð lagði 14.48% á tekjur ársins 2013.

Bæjarráð leggur áherslu að ekki var nýtt heimild til að hækka útsvarið um síðustu áramót og er útsvarið óbreytt á árinu 2014.

11.Ársfundur Byggðastofnunar 28. apríl 2014

Málsnúmer 1404044Vakta málsnúmer

Mánudaginn 28. apríl sl. sótti bæjarstjóri fund Byggðastofnunar að Miðgarði í Skagafirði.

12.Velferðarnefnd Alþingis

Málsnúmer 1404042Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis heimsótti Iðjuna og Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 28. mars sl.  Heimsóknin tókst vel í alla staði.

13.Málefni Þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þorsteinssonar

Málsnúmer 1404040Vakta málsnúmer

Reikningar lagðir fram til kynningar. Forseti bæjarstjórnar, stjórnarmaður setursins fór yfir stöðu mála.

14.Rekstraryfirlit febrúar 2014

Málsnúmer 1404048Vakta málsnúmer

Rektrarniðurstaða tímabils er 0.5 m.kr. betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, -27.1 m.kr. miðað við -27.6 m.kr.

Tekjur eru þó lægri um 5.3 m.kr, gjöld lægri um 10.1 m.kr. 

Lagt fram til kynningar.

15.Kirkjuvegur 4 Ólafsfirði

Málsnúmer 1404008Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga - drög að auglýsingu. Lögð er þar áhersla á að húsnæðið verði auglýst strax, en lagt er til að málið verði tekið til endurskoðunar eftir þrjá mánuði.

Samþykkt samhljóða.

16.Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2013-2016

Málsnúmer 1404046Vakta málsnúmer

Bæjarstjóra er falið að koma þeim ábendingum á framfæri að lagfæra þarf þjóðveginn í gegnum Fjallabyggð vegna aukinnar umferðar í samræmi við nýgerða umferðaröryggisáætlun.

Bæjarráð bendir m.a. á bréf frá Vegagerðinni þar sem ósk um færslu þjóðvegarins í gegnum Siglufjörð hefur verið hafnað.

Bæjarráð leggur því þunga áherslu á að jarðgangagerð milli Fljóta og Siglufjarðar komist á Samgönguáætlun hið fyrsta.

17.Rekstrar- og fjárhagsleg úttekt á Fjallabyggð

Málsnúmer 1211089Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 19:00.