Bæjarráð Fjallabyggðar

245. fundur 07. febrúar 2012 kl. 16:00 - 19:00 í fundarherbergi syðra á Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Helgi Marteinsson formaður
  • Bjarkey Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Sólrún Júlíusdóttir varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Aðild sveitarfélaga að rammasamningum Ríkiskaupa 2012

Málsnúmer 1202003Vakta málsnúmer

Fyrirhuguð eru rammasamningsútboð Ríkiskaupa fyrir árið 2012 og er bæjarfélögum boðin þátttaka að venju.

Bæjarráð telur rétt að Fjallabyggð endurnýji aðild að rammasamningakerfi Ríkiskaupa.

Bæjarfélagið mun greiða árgjald til Ríkiskaupa að upphæð kr. 21.335.- með vsk.

Samþykkt samhljóða.

 

2.Húsnæði Aladíns við Ægisgötu 15

Málsnúmer 1110090Vakta málsnúmer

Bæjarfélaginu er boðið umrætt húsnæði, sem staðsett er við knattspyrnuvöllinn í Ólafsfirði, til kaups með yfirtöku skulda.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að kaupin fari fram og er kaupverð miðað við kr. 10.350.000.-.

Bæjarráð mun miða við núverandi fjárfestingastefnu bæjarfélagsins þrátt fyrir umrædd kaup.

3.Breyting á nefndarskipan

Málsnúmer 1111028Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sólrúnu Júlíusdóttur bæjarfulltrúa fyrir hönd minnihluta.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að áheyrnarfulltrúi í byggingarnefnd grunnskóla Fjallabyggðar verði Jón Tryggvi Jökulsson, aðalmaður og Jakob Kárason til vara. 
Samþykkt samhljóða.

4.Afsal - Fjallabyggð - Síldarminjasafn Íslands ses. Mannvirki á lóðinni Tjarnargötu 2 Siglufirði

Málsnúmer 1202009Vakta málsnúmer

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fram komið afsal verði samþykkt og undirritað af bæjarstjóra, en þar kemur fram að Fjallabyggð afsali mannvirkjum á lóðinni Tjarnargötu 2, til Síldaminjasafnsins ses., samkvæmt skipulagsskrá fyrir Síldarminjasafn Íslands. Umrædd mannvirki munu falla aftur til Fjallabyggðar verði félaginu slitið.

Samþykkt samhljóða.

 

5.Tjarnarstígur 3 - útboðs- og samningsskilmálar

Málsnúmer 1201024Vakta málsnúmer

Lagðar fram upplýsingar um tilboð í framkvæmdir við grunnskólann í Ólafsfirði.

Sjö aðilar skiluðu inn tilboði í framkvæmdirnar og er miðað við skilatíma 1. september 2012.

Fjögur frávikstilboð bárust og er tæknideild bæjarfélagsins falið að óska eftir frekari upplýsingum

frá bjóðendum er varðar m.a. stöðu bjóðenda og undirverktaka.


Verktaki                     Tilboð                 %              Frávikstilboð          %
Eykt ehf                  158.626.020          102,9           Skilaði ekki
Berg ehf/GJ Smiðir    167.950.000          109,0          159.100.000       103,2
Pétur Jónsson          168.760.960          109,5          Skilaði ekki
BB Byggingar ehf      175.934.713         114,1          170.932.492       110,9
Tréverk ehf              181.379.888         117,7          175.308.236       113,7
ÍAV                        192.851.137         125,1          Skilaði ekki
SS Byggir                204.241.991         132,5          174.409.018      113,1

Kostnaðaráætlun     154.144.311          100             154.144.311      100

Lögð fram fundargerð byggingarnefndar grunnskólans frá 6. febrúar 2012.
Í fundargerð kemur fram að óskað hefur verið eftir frekari upplýsingum frá þremur lægstbjóðendum.

6.Framtíðarfyrirkomulag Tjarnarborgar

Málsnúmer 1012045Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að framtíðarfyrirkomulagi um rekstur Tjarnarborgar.

Bæjarráð telur eðlilegt að fagnefnd ljúki umræðu um framkomnar tillögur, áður en til afgreiðslu kemur í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

7.Samningur um afnot og rekstur af Ægisgötu 15 Ólafsfirði

Málsnúmer 1202008Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrstu drög að framtíðarfyrirkomulagi um rekstur Ægisgötu 15 í Ólafsfirði í framhaldi af yfirtöku bæjarfélagsins á rekstri og eignarhaldi á umræddu húsnæði.
Bæjarráð telur eðlilegt að fagnefnd ljúki umræðu um framkomin drög og tillögu áður en til afgreiðslu kemur í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.

8.Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2012

Málsnúmer 1202007Vakta málsnúmer

Fundargerð 793. fundar lögð fram til kynningar.

9.Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða

Málsnúmer 1201099Vakta málsnúmer

Lögð fram tvö bréf frá Varasjóði húsnæðismála dags. 25.janúar 2012.

Fjallabyggð hefur fengið viðbótarúthlutun úr Varsjóði húsnæðismála að upphæð kr. 2.634.310.- og er söluframlag sjóðsins fyrir árið 2011 því 71,5% í stað 55% sem áður var miðað við.

Leiðrétting er gerð á framlögum vegna þriggja eigna sem bæjarfélagið seldi á árinu 2011, en það voru Hafnargata 24, Laugarvegur 37 og Ægisgata 32.

Lagt fram til kynningar.

10.Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2012

Málsnúmer 1202010Vakta málsnúmer

Fundargerð frá 31. janúar lögð fram til kynningar.

11.Til umsagnar - Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða

Málsnúmer 1202012Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (uppboð aflaheimilda), 202. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0207.html
Lagt fram til kynningar.

12.Til umsagnar - frumvarp til laga um fjögurra ára samgönguáætlun

Málsnúmer 1202013Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014, 392. mál. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0533.html
Lagt fram til kynningar.

13.Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2011-2014

Málsnúmer 1202014Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2011-2022, 393. mál. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0534.html
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:00.