Afsal - Fjallabyggð - Síldarminjasafn Íslands ses. Mannvirki á lóðinni Tjarnargötu 2 Siglufirði

Málsnúmer 1202009

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 245. fundur - 07.02.2012

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fram komið afsal verði samþykkt og undirritað af bæjarstjóra, en þar kemur fram að Fjallabyggð afsali mannvirkjum á lóðinni Tjarnargötu 2, til Síldaminjasafnsins ses., samkvæmt skipulagsskrá fyrir Síldarminjasafn Íslands. Umrædd mannvirki munu falla aftur til Fjallabyggðar verði félaginu slitið.

Samþykkt samhljóða.

 

Bæjarráð Fjallabyggðar - 248. fundur - 28.02.2012

Lagt fram afsal og lóðarleigusamningur fyrir Tjarnargötu 2 Siglufirði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita afsalið og lóðarleigusamning fyrir hönd Fjallabyggðar.