Bæjarráð Fjallabyggðar

912. fundur 12. mars 2026 kl. 11:30 - 12:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2603014Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar.

2.Rekstur upplýsingamiðstöðvar Fjallabyggðar

Málsnúmer 2601040Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samstarfssamningum við annars vegar Evanger og hins vegar Fjallasali ses (Pálshús) um rekstur upplýsingamiðstöðva í Fjallabyggð árið 2026 með möguleika á framlengingu.

Helgi Jóhannsson vék af fundi við afgreiðslu á drögum að samstarfssamningi við Fjallasali ses (Pálshús)
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun við báða aðila.

3.Umsagnarbeiðni tímabundið áfengisleyfi - L7

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn L7 um tækifærisleyfi til áfengisveitinga við skíðaskála á páskaskemmtun.
Samþykkt
Meirihluti bæjarráðs gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

Helgi Jóhannsson greiðir atkvæði á móti og óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi áfengissölu og íþróttir barna ekki eiga samleið.

4.Deiliskipulag hafnarsvæðis - Tjarnargata 16

Málsnúmer 2603013Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Bjarna Aðalgeirssyni lögmanni fyrir hönd Síldarleitarinnar sf. þar sem fram kemur að Síldarleitin sf áskilji sér rétt til skaðabóta verði af framkvæmdum á hafnarsvæðinu við Tjarnargötu 16 í samræmi við samþykkt skipulag.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð bendir á að í lögbundnu skipulagsferli komu engar athugasemdir fram af hálfu eigenda Tjarnargötu 16 auk þess sem ekki eru uppi áform að svo stöddu um að fara í uppbyggingu á svæðinu.

5.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands - verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Siglingasambandi Íslands sem send er á sveitarfélög landsins þar sem skorað er á sveitarfélögin að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum og huga jafnframt að því að styðja við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og stranda.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tvö mál frá nefnda og greiningarsviði Alþingis. Annars vegar mál 499 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og er frestur til 19.mars til að senda inn umsögn og hins vegar mál 505,frumvarp til sveitarstjórnarlaga þar sem frestur er til 20.mars til að send inn umsögn.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Samþykktir Leigufélagsins Bríetar.

Málsnúmer 2401048Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá fundi Leigufélagsins Bríetar sem Fjallabyggð er aðili að sem og tilkynning um lok skiptingu samkvæmt skiptingaáætlun dagsettri 30.júní 2025.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir af fundum nefnda og ráða Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 12:00.