Umsagnarbeiðni tímabundið áfengisleyfi - L7

Málsnúmer 2603009

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 912. fundur - 12.03.2026

Fyrir liggur erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Fjallabyggðar á umsókn L7 um tækifærisleyfi til áfengisveitinga við skíðaskála á páskaskemmtun.
Samþykkt
Meirihluti bæjarráðs gerir ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

Helgi Jóhannsson greiðir atkvæði á móti og óskaði eftir að bókað yrði að hann teldi áfengissölu og íþróttir barna ekki eiga samleið.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 914. fundur - 30.03.2026

Fyrir liggur uppfærð umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga frá L-7 ehf vegna páskaskemmtunar í Skarðsdal
Umsækjanda láðist að óska eftir leyfi til útiveitinga, þ.e. veitingasala fari fram í sölutjaldi við skíðaskála og þar verði einnig afmarkað veitingasvæði (neyslusvæði) þar sem verða borð og bekkir.

Allar jákvæðar umsagnir höfðu borist við fyrri beiðni, óskað er eftir að veitt verði umsögn vegna þessarar breyttu forsenda.