Deiliskipulag hafnarsvæðis - Tjarnargata 16

Málsnúmer 2603013

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 912. fundur - 12.03.2026

Fyrir liggur erindi frá Bjarna Aðalgeirssyni lögmanni fyrir hönd Síldarleitarinnar sf. þar sem fram kemur að Síldarleitin sf áskilji sér rétt til skaðabóta verði af framkvæmdum á hafnarsvæðinu við Tjarnargötu 16 í samræmi við samþykkt skipulag.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð bendir á að í lögbundnu skipulagsferli komu engar athugasemdir fram af hálfu eigenda Tjarnargötu 16 auk þess sem ekki eru uppi áform að svo stöddu um að fara í uppbyggingu á svæðinu.