Bæjarráð Fjallabyggðar

576. fundur 15. október 2018 kl. 16:30 - 17:10 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Særún Hlín Laufeyjardóttir varamaður, H lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Viðhald húsnæðis Ægisgötu 13 Ólafsfirði

Málsnúmer 1306042Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Láru Stefánsdóttur skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga dags. 2. október 2018 varðandi ástand á þaki skólahúsnæðisins að Ægisgötu 13, Ólafsfirði. Einnig lagt fram minnisblað bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar dags. 12. október 2018 þar sem lagt er til að dúkur á þaki Menntaskólans á Tröllaskaga verði lagfærður í þremur áföngum á næstu þremur árum.

Bæjarráð samþykkir að vísa viðhaldi á þakdúk húsnæðis Menntaskólans á Tröllaskaga til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.

2.Staðgreiðsla tímabils - 2018

Málsnúmer 1801014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit staðgreiðslu útsvars frá 1. janúar til 30. september 2018. Innborganir nema 802.194.195 kr. sem er 100,36% af tímabilsáætlun sem gerði ráð fyrir 799.352.748 kr.

3.Kvörtun undan viðhaldsleysi á brekku við Hlíðarveg 7b, Siglufirði

Málsnúmer 1809082Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra tæknideildar þar sem fram kemur að vinna við áætlaðar lagfæringar á brekkunni í sumar hafi dregist af óviðráðanlegum orsökum en sé nú lokið.

4.Niðurstaða KPMG á greiningu á núverandi stöðu fasteigna í eigu sveitarfélagsins

Málsnúmer 1803069Vakta málsnúmer

Á 113. fundi félagsmálanefndar Fjallabyggðar var lagt til við bæjarráð að leiguverð verði hækkað um 5%.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu félagsmálanefndar um 5% hækkun til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.

5.Umsókn um stuðning Fjallabyggðar vegna þátttöku í ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018 á Akureyri.

Málsnúmer 1809091Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um styrk frá Markaðsstofu Ólafsfjarðar vegna kynningar níu ferðaþjónustuaðila í Ólafsfirði á starfsemi fyrirtækja sinna á ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk í formi húsaleigu í Tjarnarborg vegna stofnfundar Markaðsstofu Ólafsfjarðar og tveggja vinnufunda sem haldnir voru í Tjarnarborg. Styrkur kr. 45.000.- verður tekinn af deild 13610, lykli 4921 sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2018.

6.Kostnaðarskipting launa við TÁT

Málsnúmer 1805108Vakta málsnúmer

Lagt fram launayfirlit ásamt kostnaðarskiptingu milli Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar í sameinuðum tónskóla, Tónlistarskólanum á Tröllaskaga sem stjórn tónlistarskólans samþykkti að vísa til bæjarráðs Fjallabyggðar og byggðarráðs Dalvíkurbyggðar á fundi sínum þann 5. október sl.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi launaáætlun og kostnaðarskiptingu og vísar til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2019.

7.Umsókn um styrk/aðstoð við rannsóknir til undirbúnings atvinnuuppbyggingar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1810071Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Framfarafélags Ólafsfjarðar ehf. dags. 10.10.2018 þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjarráð um hugsanlega aðkomu bæjarfélagsins að rannsóknum á svæði sem Framfarafélaginu hefur verið úthlutað í Ólafsfirði.

Bæjarráð samþykkir að boða forsvarsmenn Framfarafélagsins ehf. til fundar bæjarráðs þann 30. október nk.

8.Tilboð í endurnýjun á samningi við Origo

Málsnúmer 1810065Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi Fjallabyggðar og Origo ehf um þjónustu vegna rent a prent ljósritunar og tengdum búnaði.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

9.Frá nefndasviði Alþingis - 173. mál til umsagnar

Málsnúmer 1810073Vakta málsnúmer

Lögð fram til umsagnar tillaga Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna þingsáætlunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019-2033, 173. mál.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn bæjarstjóra Fjallabyggðar.

10.Skýrsla Flugklasans Air 66N

Málsnúmer 1810072Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Flugklasans Air 66N vegna tímabilsins 27. mars til 7. október 2018.

11.Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019

Málsnúmer 1810063Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins dags. 2. október 2018 þar sem bæjar- og sveitarstjórnum er gefin kostur á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006 með síðari breytingum. Umsóknafrestur er til 1. nóvember 2018

Bæjarráð samþykkir að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 og felur bæjarstjóra að senda umsókn til ráðuneytisins.

12.Listviðburðarhópurinn Huldufugl óskar eftir íþróttasal í Ólafsfirði 14 og 15. desember

Málsnúmer 1810067Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Nönnu Gunnarsdóttur f.h. Huldufugls þar sem óskað er eftir verðtilboði eða fríum afnotum af íþróttahúsi í Ólafsfirði til æfinga til að þróa nýtt leikverk í samstarfi við breska leikhópinn Hikapee sem byggir á sögu um Huldufólk. Um er að ræða dagana 14. og 15. desember nk.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála og forstöðumanns íþróttamannvirkja varðandi dagsetningar og verð samkvæmt gjaldskrá.

13.Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa

Málsnúmer 1810066Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfisstofnunar dags. 8. október 2018 þar sem fram kemur að 21. ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofu verður haldin á Flúðum 8. nóvember nk.

14.Húseignin Hólavegur 12

Málsnúmer 1807051Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svar húseigenda.

Fundi slitið - kl. 17:10.