Umsókn um stuðning Fjallabyggðar vegna þátttöku í ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018 á Akureyri.

Málsnúmer 1809091

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 574. fundur - 02.10.2018

Erindi frestað, frekari gagna óskað í samræmi við umræður á fundi auk umsagnar markaðs- og menningarfulltrúa.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 576. fundur - 15.10.2018

Lögð fram umsókn um styrk frá Markaðsstofu Ólafsfjarðar vegna kynningar níu ferðaþjónustuaðila í Ólafsfirði á starfsemi fyrirtækja sinna á ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk í formi húsaleigu í Tjarnarborg vegna stofnfundar Markaðsstofu Ólafsfjarðar og tveggja vinnufunda sem haldnir voru í Tjarnarborg. Styrkur kr. 45.000.- verður tekinn af deild 13610, lykli 4921 sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2018.