Tilboð í endurnýjun á samningi við Origo

Málsnúmer 1810065

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 576. fundur - 15.10.2018

Lögð fram drög að samningi Fjallabyggðar og Origo ehf um þjónustu vegna rent a prent ljósritunar og tengdum búnaði.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.