Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

9. fundur 15. apríl 2026 kl. 16:00 - 18:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varam.
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Andri Viðar Víglundsson varam.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra framkvæmdasviðs á tillögum til úrbóta á vatnsveitu í Ólafsfirði og vatnsöflun. Í samræmi við innviðagreiningu Eflu frá árinu 2023 eru þrír möguleikar á vatnsbólum skoðaðir auk þess sem skoðaður er möguleiki á borun eftir köldu vatni. Sviðsstjóri fór yfir málið og leggur til að skoðaður verði frekar sá möguleiki að bora eftir köldu vatni í nágrenni Múlalindar.
Samþykkt
Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir samantektina og leggur til við bæjarráð Fjallabyggðar að farið verði að tillögu sviðsstjóra um að boraðar verði tilraunaholur eftir köldu vatni á vatnasvæði í Brimnesdal þegar snjóa leysir og færi gefst. Niðurstöður úr slíkum tilraunaholum gæfu þá nauðsynlegar upplýsingar varðandi framhaldið um úrbætur á vatnsmálum í Ólafsfirði.

2.Ærslabelgur 2026

Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur að staðsetningu á ærslabelg á Siglufirði. Annars vegar er gert ráð fyrir ærslabelg á núverandi stað en þá þarf að girða við hann til þess að minnka slysahættu en gert er ráð fyrir um 70 metra girðingu auk þess sem settur yrði upp drykkjarbrunnur innan girðingar og stæði fyrir reiðhjól. Áætlaður kostnaður er um 1 milljón. Hins vegar er tillaga um að færa ærslabelginn á lóð við Vallarbraut þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og samhliða því sá í svæðið um kring eða þökuleggja og setja þar upp fótboltamörk. Svæðið gæti litið afar vel út með þessari útfærslu en kostnaður er umtalsverður eða um 4 milljónir er reiknað er með þökulagningu á svæðinu.
Samþykkt
Nefndin leggur til að ærslabelgur á Siglufirði verði færður á svæði við Vallarbraut í samræmi við fyrirliggjandi gögn þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og að samhliða því verði sáð í svæðið að hluta og að hluta þökulagt þannig að það nýtist sem almennt leik - og útivistarsvæði.

3.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl frá fundum 58, 59 og 60 hjá framkvæmdasviði og bæjarstjóra.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

4.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Í marsmánuði var um 725 tonnum landað í Fjallabyggð og þá búið að landa ríflega 2.071 tonnum frá áramótum og nær öllum aflanum landað á Siglufirði. Til samanburðar var landað um 2.200 tonnum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 og er því um lítilsháttar samdrátt að ræða frá fyrra ári.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Holræsahreinsun og götusópun verðkönnun og útboð 2026

Málsnúmer 2602057Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar úr verðkönnun sem gerð var vegna götu - og gangstéttasópunar í Fjallabyggð.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 18:00.