Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

8. fundur 05. mars 2026 kl. 16:00 - 17:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varam.
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Jón Kort Ólafsson aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Umsóknir um starf hafnarvarðar febrúar 2026

Málsnúmer 2602037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á umsóknum um starf hafnarvarðar við Fjallabyggðarhafnir sem auglýst var í febrúar
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Af þeim 16 umsóknum sem bárust er ljóst að 12 umsækjendur uppfylla ekki æskileg skilyrði til ráðningar í starfið. Nefndin felur hafnarstjóra og formanni nefndarinnar að boða 4 aðila í viðtal um starfið og ganga frá ráðningu í kjölfarið.

2.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra með tillögum að lagfæringum og endurnýjun á vatnsveitu Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin ítrekar fyrri bókun og óskar eftir upplýsingum frá framkvæmdasviði um mögulega kosti um hagkvæmar lausnir.

3.Virðisaukaskattur og skemmtiferðaskip

Málsnúmer 2602060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá ráðgjafafyrirtækinu BBA/Fjeldco fyrir AECO (Samtök leiðangursskipa á norðurslóðum) þar sem teknar eru saman upplýsingar um áhrif breytinga á virðisaukaskatti á komu skemmtiferðaskipa.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

4.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af fundum framkvæmdasviðs númer 54, 55 og 56.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Í febrúarmánuði var um 815 tonnum landað í Fjallabyggð og þá búið að landa ríflega 1.340 tonnum frá áramótum og nær öllum aflanum landað á Siglufirði. Til samanburðar var landað um 750 tonnum á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2025 og er því umtalsverð aukning á lönduðum afla á milli ára.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 480.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:00.