Bæjarráð Fjallabyggðar

925. fundur 09. júlí 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Pálmi Blængsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá Ísor þar sem fram koma tillögur að fimm holustaðsetningum til borunar eftir köldu vatni í og við Brimnesdal.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Ísor fyrir framlagt minnisblað og felur Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að óska eftir verðtilboðum í tilraunaboranir á allt að fimm holum eins og kemur fram í minnisblaðinu.

2.Síldarævintýrið 2026

Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá stýrihóp um Síldarævintýrið varðandi götulokanir, afnot af húsnæði og ýmsum búnaði Fjallabyggðar, leyfi til að halda flugeldasýningu og brennu og fleira.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir lokun Vetrarbrautar frá Aðalgötu að Eyrargötu frá klukkan 17:30, fimmtudaginn 30.júlí, til mánudagsmorguns 3. ágúst.
Bæjarráð samþykkir einnig lokun Aðalgötu við Túngötu að Grundargötu og Lækjargötu frá Aðalgötu að Gránugötu frá hádegi föstudagsins 31. júlí til mánudagsmorguns 3. ágúst. Heimilt verði að loka ofangreindum götum í miðbænum fyrr á fimmtudeginum vegna uppsetningar á sviði, gerist þess þörf. Forsvarsmenn hátíðarinnar setji sig í samband við viðbragðsaðila og kynni fyrir þeim lokanirnar.
Bæjarráð heimilar staðsetningu á Hopplandi á Ingvarsbryggju að vestanverðu.
Bæjarráð fyrir sitt leyti gefur leyfi fyrir að spila lifandi tónlist til miðnættis í miðbænum, leyfi fyrir flugeldasýningu föstudagskvöldið 31. júlí, brennu á Norðurtanga á laugardagskvöldið og skrúðgöngu frá miðbænum að Norðurtanga.
Jafnframt samþykkir bæjarráð opnun á íþróttahúsinu á Siglufirði eftir þörfum ef veðuraðstæður eru slæmar og frían aðgang að sundlauginni í Ólafsfirði fyrir börn og unglinga til og með 18 ára aldri á laugardag.
Það sem snýr að tjaldsvæðum skal hafa samband við rekstraraðilann Evanger.
Hvað önnur atriði varðar í beiðninni þá felur bæjarráð bæjarstjóra og tæknideild að vera í sambandi við forsvarsmenn hópsins varðandi þau.

3.Umsókn um styrk - félag eldri borgara í Fjallabyggð

Málsnúmer 2607001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá félögum eldri borgarar í Fjallabyggð þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk vegna ársins 2027.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð fagnar öflugu starfi innan félaganna og þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

4.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026 - 2030

Málsnúmer 2605056Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um að Gunnar Steingrímsson taki sæti í Fjallaskilanefnd Fjallabyggðar í stað Egils Rögnvaldssonar.
Samþykkt
Samþykkt

5.Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur listi umsækjenda um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar en 22 umsóknir bárust um starfið og dró einn umsækjandi umsókn sína til baka.
Lagt fram til kynningar
Eftirtaldir sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar:

Aðalheiður Sigursveinsdóttir - Stjórnunarráðgjafi
Anna Lind Björnsdóttir - Verkefnastjóri
Arnljótur Bjarki Bergsson - Ráðgjafi
Ásgeir Sveinsson - Verkefnastjóri
Ásmundur Friðriksson - Rithöfundur og fv. alþingismaður
Einar Kristján Jónsson - Fv. sveitarstjóri
Elsa Guðrún Jónsdóttir - Fjármála- og verkefnastjóri
Hafdís Huld Björnsdóttir - Framkvæmdastjóri
Hilmar Vilberg Gylfason - Sérfræðingur
Jóhann Skagfjörð Magnússon - Skólastjóri
Jón Hrói Finnsson - Stjórnsýsluráðgjafi
Jórunn Ósk Frímannsdóttir - Verkefnastjóri
Kári Gautason - Ráðgjafi
Kjartan Þór Ragnarsson - Sveitarstjóri
Lilja Birgisdóttir - Verkefnastjóri
Maríanna Hugrún Helgadóttir - Fv. formaður og framkvæmdastjóri
Rut Jónsdóttir - Viðskiptafræðingur
Sigurður Sigurðsson - Rekstrarstjóri
Starri Reynisson - Deildarstjóri
Þórir Hákonarson - Bæjarstjóri
Ægir Örn Arnarson - Sérfræðingur

Lagt fram til kynningar.

6.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af stöðufundum 71. og 72. fundar hjá skipulags- og framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:00.