Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

12. fundur 18. ágúst 2026 kl. 16:00 - 18:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir Varamaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Hafnaraðstaða og þjónusta við höfnina í Ólafsfirði

Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi nefndarinnar var óskað eftir að fulltrúar FMS myndu mæta á fund nefndarinnar. Einar Guðmundsson framkvæmdastjóri FMS og Steingrímur Óli Hákonarson stöðvarstjóri FMS í Fjallabyggð koma á fjarfund.
Lagt fram til kynningar
Einar Guðmundsson framkvæmdastjóri FMS fór yfir starfsemi fyrirtækisins í Fjallabyggð og mikilvægi þess að gott samstarf væri á milli FMS og hafnaryfirvalda í Fjallabyggð. Einar benti á að mikilvægasta markaðssetning hafnarinnar réðist annars vegar á aflabrögðum á nálægum miðum og hins vegar á gjaldskrá hafna. Jafnframt fóru þeir yfir atriði sem gætu aukið þjónustu hafnarinnar við báta sem þar landa. Nefndin þakkar fulltrúum FMS fyrir gott samtal.

2.Framkvæmdir og viðhald 2026

Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags - og framkvæmdasviðs, Gísli D. Sævarsson, fór yfir helstu framkvæmdir ársins og stöðuna á þeim auk þess sem farið var stuttlega yfir helstu viðhaldsverkefni.
Samþykkt
Framkvæmdir á fjárfestingaáætlun sem samþykkt var fyrir árið 2026 eru flestar á áætlun og lýkur þeim í haust. Viðhaldsverkefni sem samþykkt voru eru jafnframt á áætlun.

3.Innra eftirlit með öryggi í höfnum 2026

Málsnúmer 2607014Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri greindi frá innra eftirliti á öryggisbúnaði sem starfsmenn hafnarinnar hafa framkvæmt að undanförnu í samræmi við ákvæði reglugerðar um slysavarnir og öryggisbúnað nr 580/2017.
Samþykkt
Hafnarstjóri greindi frá athugasemdum er gerðar voru af Samgöngustofu varðandi öryggismál og framkvæmd siglingaverndar á Siglufirði. Búið er að bregðast við þeim athugasemdum sem gerðar voru.

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 483.fundi stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála varðandi borun eftir köldu vatni í Ólafsfirði.
Lagt fram til kynningar
Fyrirhugað er að hefja borun eftir köldu vatni í tveimur holum á næstu dögum.

6.Heimsókn um borð í skemmtiferðaskipið Aida Luna 2026

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Anitu Elefsen f.h. Cruise Iceland, þar sem m.a. fulltrúum framkvæmda-, hafna- og veitunefndar er boðið í heimsókn um borð í skemmtiferðaskipið AIDA Luna sem verður við höfn á Akureyri þann 27.ágúst n.k. Tilgangur heimsóknarinnar er að bjóða hagsmunaaðilum á Íslandi til heimsóknar um borð og kynna starfsemina, bæði á sjó og í landi.
Lagt fram til kynningar
Hluti nefndarfólks mun þiggja boðið og hefur tök á að mæta.

7.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

609 tonnum var landaði Fjallabyggð í júní 2026 en í júní á síðasta ári var landað um 423 tonnum. Í júlí var landað um 1.161 tonnum í Fjallabyggð á móti um 1.718 tonnum á síðasta ári í sama mánuði. Í heildina er búið að landa ríflega 5.760 tonnum í Fjallabyggð frá áramótum 2026 á fyrstu 7 mánuðum ársins en á síðasta ári var landað 6.200 tonnum á sama tíma. Nær öllum aflanum er landað á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 18:00.