Bæjarráð Fjallabyggðar

916. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Snjómokstur 2026

Málsnúmer 2604014Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl bæjarstjóra með samantekt á snjómokstri í Fjallabyggð undanfarin ár.
Samþykkt
Ljóst er að kostnaður við snjómokstur það sem af er árinu 2026 er umtalsvert hærri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir en kostnaður í mars nam ríflega 30 milljónum króna, um 20 milljónir á Siglufirði og um 10 milljónir á Ólafsfirði. Að teknu tilliti til þess að snjóflutningur á Siglufirði, þ.e. keyrsla á snjó í burtu, var umtalsverður á meðan ekki var keyrt í burtu á Ólafsfirði m.a. vegna vélsleðamóts, er kostnaðarskipting nokkuð í samræmi við kílómetrafjölda gatnakerfis í hvorum byggðarkjarna.
Vegna þessa aukins kostnaðar miðað við áætlun er bæjarstjóra falið að gera tillögu að tilfærslu og viðauka í fjárhagsáætlun ársins 2026 þar sem framlag til snjómoksturs verði hækkað.

2.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs sem lagt var fyrir fund framkvæmda-, hafna- og veitunefndar miðvikudaginn 14.apríl.
Samþykkt
Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd leggur til við bæjarráð að farið verði að tillögum sviðsstjóra um að boraðar verði tilraunaholur eftir köldu vatni á vatnasvæði Brimnesdals. Bæjarráð tekur undir tillögu nefndarinnar og felur skipulags- og framkvæmdasviði að vinna málið áfram.

3.Loftslagsstefna Norðurlands eystra

Málsnúmer 2507007Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir tilnefningu Fjallabyggðar á fulltrúa í samvinnuvettvang sem er ætlað að vinna að framfylgd Loftlagsstefnu Norðurlands eystra.
Samþykkt
Bæjarráð tilnefnir Gísla Davíð Sævarsson, sviðsstjóra, sem fulltrúa Fjallabyggðar í samvinnuvettvangi sem ætlað er að vinna að framfylgd loftslagsstefnu Norðurlands eystra.

4.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 2604026Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá umboðsmanni barna þar sem sveitarstjórnir eru hvattar til þess að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða og nemendum grunnskóla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð beinir því til deildarstjóra fræðslu- og frístundamála að skipuleggja umræðufund grunnskólanemenda með fulltrúum framboða til sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð.

5.Lög um lagareldi

Málsnúmer 2512041Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsögn stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á frumvarpi til laga um lagareldi, 529.mál.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

6.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af stöðufundum 58, 59 og 60 hjá framkvæmda - og skipulagssviði Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Haf- og strandsvæðaskipulag

Málsnúmer 2502038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem bæjarstjóri Fjallabyggðar, Þórir Hákonarson, er tilnefndur sem aðalmaður í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð og Anna Karen Úlfsdóttir, sveitarstjórnarkona í Svalbarðsstrandarhreppi er tilnefnd til vara.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:00.