11.11.2009
Þeir aðilar sem vilja selja vörur sínar í jólahúsunum í Ólafsfirði sem vígð verða 28. nóvember hafi samband við Karítas í síma 464 9200 eða á netfangið karitas@fjallabyggd.is.
Lesa meira
11.11.2009
Undanfarin ár hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki í Fjallabyggð skapað góða jólastemmningu yfir aðventuna. Aðventudagskrá hefur birst árlega í Tunnunni þar sem hægt er að sjá allt það sem er í boði.
Nú er kominn tími til að huga að aðventunni í ár og því eru allir þeir sem ætla að standa fyrir viðburðum, beðnir að hafa samband við fræðslu- og menningarfulltrúa fyrir 17. nóvember nk. í síma 464 9200 eða á netfangið; karitas@fjallabyggd.is
Lesa meira
10.11.2009
Á vef Íslenska gámafélagsins má finna efnislista fyrir tunnuskýlum sem passa fyrir þær þrjár tunnur sem verða teknar í notkun 1. desember nk. Hér má sjá efnislistann
Lesa meira
06.11.2009
43. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg Ólafsfirði þriðjudaginn 10. nóvember 2009 kl. 17.00
Lesa meira
04.11.2009
Á haustfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sem haldin var í menningarhúsinu Bergi í sl. viku var m.a. tilkynnt um úthlutun úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar, þá þriðju og síðustu á þessu ári.
Lesa meira
04.11.2009
Í vikunni var skrifað undir samning við GJ smiði um byggingu tækjarýmis og aðrar frakvæmdir við sundlaugina í Ólafsfirði. Um er að ræða nauðsynlega framkvæmd vegna breytinga á hreinsibúnaði sundlaugarinnar.
Þegar vitað var að þessi framkvæmd yrði á dagskrá varið ákveðið að teikna upp framtíðarskipulag á svæðinu.
Lesa meira
03.11.2009
Dagana 5.-8. nóvember næstkomandi munu ráðgjafar frá Íslenska Gámafélaginu heimsækja alla íbúa í Fjallabyggð og veita faglega ráðgjöf og svara þeim spurningum sem kunna að koma upp varðandi breytingar á sorphirðu.
Lesa meira
29.10.2009
Nefnd sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að fjalla um almenningssamgöngur á Norðurlandi eystra hefur skilað tillögum sínum. Meðal annars er lagt til að stofnað verði samgöngufélag sem skipuleggi samhæft almenningssamgöngukerfi sem rekið verði sem þróunarlíkan.
Lesa meira
27.10.2009
Sett hefur verið upp spjallsvæði á vefnum fyrir umræður um hátíðir og viðburði í Fjallabyggð. Þeir sem skrá sig sem notendur geta tekið þátt í þeim umræðum
sem búið er að stofna, eða hafið umræður um nýtt umræðuefni að vild, að því
gefnu að það hafi skírskotun til meginefnis spjallborðsins.
Lesa meira