20.02.2009
Auglýst er eftir umsóknum frá félögum og félagasamtökum um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
Umsóknarfrestur er til 11. mars 2009.
Lesa meira
20.02.2009
Rækjuvinnsla hefst eftir páska.
Eins og við höfum áður sagt frá, er áætlað að hefja rækjuvinnslu á ný hjá Rammanum á Siglufirði um miðjan apríl.
Lesa meira
20.02.2009
Út er kominn nýr 17 laga geisladiskur með hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust gefin út af Mogomusic ehf. “Þung er nú báran ...” er fjórði geisladiskur hljómsveitarinnar í fullri lengd.
Lesa meira
19.02.2009
Samkvæmt upplýsingum KKS mættu um 450 manns í Íþróttahúsið á Sigló á Þorrablót KKS og skemmtu sér víst mjög vel. Skemmtidagskráin hófst eftir níu, yfir seinni matarumferðinni.
Lesa meira
16.02.2009
Þann 11. febrúar var 1-1-2 dagurinn haldinn um allt land. Tilgangur dagsins er að minna á neyðarnúmerið 1-1-2. Í Fjallabyggð heimsóttu slökkvilið, björgunarsveitir, sjúkraflutningamenn og lögregla grunnskólana og sýndu tæki og búnað og sögðu frá starfsemi sinni.
Lesa meira
12.02.2009
Ákveðið hefur verið að Nikulásarmótið í knattspyrnu (Ólafsfirði) verði helgina 17.-19. júlí í sumar. Mótið hefur að undanförnu verið helgina áður, en hefur verið fært á umrædda helgi þar sem Landsmót UMFÍ verður helgina 11.-12. júlí á Akureyri. Frekari upplýsingar um mótið má finna á Nikulas.is.
Lesa meira
10.02.2009
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti nýverið tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2009. Baldur Ævar Baldursson var einn af þeim sem fékk B-styrk sem er kr. 960.000.- en hann fékk einnig á þennan styrk á síðasta ári. Baldur Ævar keppir undir merkjum Snerpu á Siglufirði.
Lesa meira
06.02.2009
Formleg opnunarhátíð á Listasafni Fjallabyggðar í Ráðhúsinu á Siglufirði var í gær kl. 20:00. Boðið var uppá listfræðilega leiðsögn og léttar veitingar. Sigríður Gunnarsdóttir listfræðingur setti sýninguna upp.
Lesa meira
06.02.2009
Dagurinn er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmiðið með verkefninu er að beina sjónum að leikskólanum og því gróskumikla og mikilvæga starfi sem þar fer fram, hvetja til aukinnar umræðu um leikskólastarf og gera það sýnilegra.
Lesa meira
05.02.2009
35. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í húsi Félags eldri borgara í Ólafsfirði þriðjudaginn 10. febrúar 2009 kl. 17.00.
Lesa meira