Húsnæðismál félags eldri borgara Siglufjarðar

Málsnúmer 2609011

Vakta málsnúmer

Öldungaráð Fjallabyggðar - 11. fundur - 08.09.2026

Ósk félags eldri borgara á Siglufirði um að könnuð verði þörf á húsnæði fyrir eldra fólk.
Vísað til bæjarráðs
Félag eldri borgara á Siglufirði lagði fram erindi varðandi húsnæðismál eldra fólks í Fjallabyggð. Í erindinu er óskað eftir því að bæjarráð láti kanna þörf og áhuga meðal íbúa 60 ára og eldri á sérstökum búsetuúrræðum fyrir aldurshópinn, hvort sem um er að ræða leigu- eða kaupleiðir.

Öldungaráð tekur undir erindið og beinir því til bæjarráðs að kannaður verði áhugi og þörf fyrir slíkt húsnæði í Fjallabyggð.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10.09.2026

Erindi vegna húsnæðis fyrir eldra fólk í Fjallabyggð.
Lagt fram til kynningar
Velferðarnefnd tekur undir bókun öldungaráðs um að gerð verði könnun á þörf fyrir húsnæði fyrir eldra fólk. Nefndin mun á næstu vikum skoða þær íbúðir á Vallarbraut sem eru í eigu sveitarfélagsins.