Félagsaðstaða félagssamtaka eldri borgara

Málsnúmer 2609015

Vakta málsnúmer

Öldungaráð Fjallabyggðar - 11. fundur - 08.09.2026

Félagsaðstaða eldri borgara á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Félag eldri borgara á Siglufirði óskar eftir samtali um félagsaðstöðu sem gæti nýst starfsemi félagsins, meðal annars til varðveislu gagna og muna sem henni tengjast.

Helga Hermannsdóttir, forstöðumaður Skálarhlíðar, benti á aðstöðu á neðri hæð Skálarhlíðar sem mögulega gæti hentað fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar félagsins munu skoða aðstöðuna og meta hvort hún geti mætt þörfum félagsins.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 10.09.2026

Erindi vegna félagsaðstöðu eldri borgara á Siglufirði.
Lagt fram til kynningar
Á fundi öldungaráðs fyrr í vikunni kom fram að hugsanlega er húsnæði til staðar á Skálarhlíð sem hentar starfseminni. Velferðarnefnd fór í heimsókn á Skálarhlíð og telur að húsnæðið sem í boði er sé mjög gott fyrir þá starfsemi sem Félag eldri borgara á Siglufirði er að óska eftir.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 933. fundur - 17.09.2026

Fyrir liggja erindi frá félagi eldri borgara á Siglufirði sem hafa verið til umræðu í Öldungaráði þar sem óskað er eftir aðkomu Fjallabyggðar að félagsaðstöðu fyrir félagið.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna málið áfram með félaginu.