Ungmennaráð Fjallabyggðar

10. fundur 09. desember 2015 kl. 16:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Haukur Orri Kristjánsson aðalmaður ungmennaráðs
  • Óskar Helgi Ingvason aðalmaður ungmennaráðs
  • Vaka Rán Þórisdóttir aðalmaður ungmennaráðs
  • Tinna Kristjánsdóttir aðalmaður ungmennaráðs
  • Anna Día Baldvinsdóttir aðalmaður ungmennaráðs
  • Haukur Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Haukur Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi

1.Framtíðarhúsnæði Neon

Málsnúmer 1511003Vakta málsnúmer

Ungmennaráð felur íþrótta-og tómstundafulltrúa að setja saman könnun á húsnæði Félagsmiðstöðvar í samráði við Ungmennaráð.

2.Almenningssamgöngur milli byggðakjarna

Málsnúmer 1505058Vakta málsnúmer

Ungmennráð mælist að fjölga ferðum á milli byggðakjarna með minni bíl og einnig verði hugað að ferðum um helgar.
Einnig mælist ungmennaráð til að mokað verði frá biðskýlum svo að hægt sé að fara inn í þau.

3.Áhöld í íþróttahús

Málsnúmer 1511060Vakta málsnúmer

Ungmennaráð vill að farið verði af alvöru í endurnýjun tækja í tækjasölum Fjallabyggðar.
Ungmennaráð felur íþrótta-og tómstundafulltrúa að athuga með vír í cabelcross vél og önnur tæki.
Einnig bendir ráðið á að það vanti kennsluáhöld í íþóttasal.

4.Umgengnisreglur á sparkvöllum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1203046Vakta málsnúmer

Ungmennaráð felur íþrótta-og tómstundafulltrúa að láta útbúa skilti með umgengnisreglum og einnig skilti sem banna reykingar á svæðinu.

Fundi slitið.